Skírnir - 01.01.1888, Blaðsíða 76
78
AMERÍKA.
þessa dags og sést á því kvæði, að skáldgáfu hans hefur ekki
farið aptur.
í október fór Cleveland á sínum cigin járnbrautarvögnum
um norðvesturhluta Bandaríkjanna og suður með Missisippi og
var alstaðar vel fagnað.
þingið í Washington samþykkti á öndverðu árinu ný lög
móti fleirkvæni Mormóna og þeir Mormónar, sem ekki hlýða
þeim, eru að tínast úr landi til Mexicó. Lög um sérstaka
stjórnardeild fyrir akuryrkju og verknaðarmál voru samþykkt
um sama leyti.
þeir Henry George og M0Glynn ferðuðust um Bandarikin
og héldu fyrirlestra um skoðanir sínar og var þeim viða ákaf-
lega vel fagnað. McGlynn er nú ekki lengur í hinni rómversk-
kaþólsku kirkju. Páfinn hefur bannfært hann vegna villukenn-
inga, en M'Glynn segist vera kaþólskur eptir sem áður, þó
hann hafi afneitað páfanum. Söfnuður hans vill ekki skilja við
hann og þetta getur orðið páfa í Rómi hinn versti grikkur, ef
kaþólskir menn í Bandaríkjunum fara að leysa sig undan páfa-
valdinu. þeir Henry George hafa stofnað félag, sem kallast
Antipoverty Society (félag móti fátækt). þeir segja t. d. aðjörðin
eigi að vera sameign, þannig að hver maður megi hafa not
hennar eins og loptið, sem vér öndum að oss, er sameign. þó
Henry George eigi marga vini i ríkinu New York, fékk hann
þó ekki nógu mörg atkvæði til að verða rikisstjóri haustið 1887,
er kosningar fóru fram. En kenningar hans hafa vakið athygli
og hann á fylgismenn bæði á Englandi og í Ameríku.
Til dæmis um hinn mikla innflutning til Bandaríkjanna 1887
er það, að 11. mai þ. á. stigu 9996 manns í land í New York,
sem ætluðu að setjast að í landinu. Yms frumvörp hafa komið
fram á þingi um að takmarka innflutninga til Bandaríkjanna.
þau fara fram á, að engir megi setjast að í landinu, nema
þeir hafi skýrteini frá yfirvöldum sinum og umboðsmanni Banda-
fylkjanna, að þeir séu ráðvendismenn, nema þeir séu ekki fé-
lausir o. s. frv.
Ameríkumenn eru orðnir þreyttir á, að láta land sitt vera
ruslakistu fyrir allt afhrak frá Evrópu. Spellvirki anarkistanna