Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.04.1905, Side 12

Skírnir - 01.04.1905, Side 12
108 Nokkur orð um lífsaflið. það upp, köllum vér hyldgun, en ofhyldgun köllum vjer það, ef svo mikið kveður að því, að botninn verður hærri en heila holdið umhverfls. Hvernig víkur þessum brevtingum við? Fyrir aðstoð sjónauka vita menn að í raun réttri fara fram svipaðar breytingar við báða gróðrarmátana. Hyldgunin er af- springur frumpartanna í kring, sem hafa æxlast, og rauði liturinn kemur af því að í þessum afspreng myndast einnig aragrúi af smáæðum, sem hafa svo þunna veggi meðan þær eru ungar, að blóðliturinn sést í gegnum veggina. Hvernig stendur á því að þessi nýmyndun verður eftir drep, beinbrot og skurði? Hvernig stendur á því að gamlar skorpnar sellur fara að æxlast og auka kyn sitt? Það er engin furða þó læknum sé forvitni á að vita um orsökina til þessarar kynlegu breytingar á háttalagi þeirra, en það er sannast að segja, að svarið er engan veginn áreiðanlegt. Það mætti benda á, að kringum skurði, beinbrot og drep er jafnaðarléga nokkur roði, sem bendir á að blóð- sókn sé aukin til þeirra. Með aukinni blóðsókn kemur aukin næring. Sumii' hugsa sér nú, að sellurnar gleypi við þessari auknu næringu, og fái fyrir hana svona mikið nýtt fjör. En þetta er engin sönnun. Vér erum allsendis ófæ'rir um að sanna, að þær taki meiri næringu til sín, hver um sig, þó hún bjóðist. Sennilegra virðist að liugsa sér, að þessi kyrð og ró sem virðist hvíla yflr sellunum í fullorðnum líkama, sé missýning. Að þær í raun réttri séu svona »ráðsettar« út vir neyð, vegna þrengsla. Þær liggja þétt og þrýsta hver á aðra, það er víst. Ef þessar skemdir, sem eg’ nefndi, koma fyrir, þá rýmkar um þær; þá fá þær svig- rúm, og þær nota það. Þær lialda áfram að æxlast, þangað til þær eru orðnar svo margar, að þrýstingin er orðin söm og áður. Þá neyðast þær til að hætta, en þá er líka tilganginum náð: að bæta upp skemdir. Það er nú auðskilið, að þegar skurðir gróa opnir, þá tekur það lengri tíma. Ba'ði gengur töluverður tími til þess að fylla sárið með hyldgun, þeim mun lengri sem

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.