Skírnir

Volume

Skírnir - 01.04.1905, Page 22

Skírnir - 01.04.1905, Page 22
118 Nokkur orð um lífsaflið. hjarta, einmitt þau líffærin sem vér megum sízt missa. Væri svo, að þau léttust og eyddust í sama hlutfalli og önnur líffæri, mundu menn þola sult og hor miklu skem- ur en raun verður á. Þetta sem eg hef sagt um lífsaflið er auðvitað ekki annað en fáeinar bendingar, um eina hliðina á því, hvernig það kemur fram. Eg man, að mér þóttí það fróðlegt þegar eg heyrði það fyrst, en eg veit ekki hvað vkkur kann að virðast. Það er gott, et' svo er. En ef vel væri, ætti það að vera meira en eingöngu fróðlegt. Þetta lífsati er í okkur öllum ; en það er ekki jafn- sterkt í okkur öllum. Það er t. d. að öðru jöfnu sterkara í þeim sem ungir eru en í gamalmennum. En þeir eru líka margir, sem verða gamlir fyrir ár fram. Lífsaflið erfum vér frá foreldrum okkar, en það er misjafnt, hvernig við förum með þenrian arf, eins og ann- an. Vér getum eflt það og styrkt, og vér getum einnig veiklað það og misboðið því. Og eg þarf engum að segja, hvort at' þessu tvennu sé heppilegra. Sterkt lít'safl þýðir hvorki meira né minna en hress- leik og fjör, aukna mótstöðu móti slysum og næmum sjúk- dómum og afleiðingum þeirra, og hraust afkvæmi. Þetta mundu allir vilja kjósa sér, et' það fengist fyrirhafnarlaust og án sjálfsafneitunar. En það fæst ekki fvrir ekki neitt. Að halda lífsafl- inu sterku, það kostar heilsusamlegan lifnaðarhátt, og hann krefur bæði fyrirhöfn og sjálfsafneitun. Til þess að kenna hvað er heilsusamlegt — að kenna heiisut’ræði — þarf meiri tíma en hér er fvrir hendi. Þess vegna læt eg hér staðar numið og bið ykkur veivirðingar.

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.