Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.04.1905, Side 43

Skírnir - 01.04.1905, Side 43
Dularlitir og dulargerfi dýranna. 139 einlit, svo sem leðurblöknr, ýms smá nagdýr, smá rándýr og skordýraætur, önnur móflekkótt eða módröfnótt, eins og uglur og náttflðrildi og dyljast því vel hvert fyrir ann- ars sjónum; þau eru sum hinsvegar gædd næmri heyrn, sem hjálpar til að flnna bráðina, jafnvel þó þau séu svo mjúkhærð eða mjúkflðruð, að hreyfingarnar verði nærri hljóðlausar. Það ber eigi sjaldan við, að heimkynni dýra breyti útliti eftir árstíðum. Þannig er því háttað í þeirn lönd- um, er liggja undir snjó á vetrum. Sum af þeim dýrum, er þar lifa og eigi leita til heitari landa undir veturinn, verða þá hvít. Alþekt dæmi af því tægi hér á landi er rjúpan og sumar tóur og um norðanverða Evrópu snæ- hérinn og hreysikettirnir. í löndum þar sem lítið snjóar breyta þessi dýr ekki lit, t. d. hreysikötturinn á Englandi, snæhérinn á Irlandi. Sum dýr breyta lit eftir dvalarstað. Þyrsklingurinn er rauður, þegar hann er innan um þarann (þaraþyrskling- ur), en ljós á sandbotni1). Kolar breyta og fljótt lit eftir botninum, eins og áður er minst á. Það sem hingað til hefur verið talað um mætti kalla alment samræmi í lit dýranna við litina kringum þau. Skrefi lengra í eftirstælingunni komast dýr, er hafa á sér bletti, er skera úr við meginlit þeirra, en svipar til smærri hluta í kringum þau. Þannig eru sum dýr bröndótt (þver- röndótt) er halda til í stórvöxnu grasi á sólríkum stöðurn í lieitum löndum. Alkunnust þeirra eru tígrisdýr og zebra- dýr, bæði með dökkar þverrákir á gulum grunni. Þessar þverrákir eru mjög svipaðar skuggarákum þeirn, er slær á hlutina í kring af grástráunum. A grasmaðkinum skiftast á svartar og gular langrákir. G-ætir hans því minna þar sem hann er uppréttur á stráunum og skuggar stráanna gera alt röndótt. Jagúarinn, pardusdýrið og fleiri rándýr er lifa i skógum hafa á sér kringlótta flekki, sem svipar *) Að hann i raun og veru breytir lit, hefur Dr. Petersen í Dan- mörku sýrtt með tilraunum.

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.