Skírnir

Volume

Skírnir - 01.04.1905, Page 53

Skírnir - 01.04.1905, Page 53
Leturgerð og leturtegundir. 149 manna til að fá hugsunum sínum og hugtökum sýnilegan búning. Þvi til þess að fullnægja hvöt sinni til að varð- veita enclurminningar um liitt og þetta, lögðu þeir inn á ýmsar brautir, en aðeins ein þeirra lá í rétta átt. Hjá ýmsum Austurlandaþjóðum var það þegar snemma á öldum síður að nota tré, steina eða steindysjar til þess að varðveita endurminninguna um merka atburði. I 1. Mós. 28. 18 sjáum vér þannig, að Jakob reisir upp stein- inn, er hann hefir haft undir höfðinu um nóttina, til rninn- ingar um draum sinn. Svo sem kunnugt er, hefir þessi siður lialdist alt til vorra daga, þar sem enn eru reistir fj öldmargir minningarsteinar. Frumbyggjar Ameríku röðuðu margs konar maiskorn- um eða mislitum kísilsteinum í hring og höfðu til þess að halda uppi minningunni um sögulega viðburði. Hvert korn, hver steinn táknaði sinn ákveðna atburð. Þegar kristnir trúboðar komu til landsins, kunnu þeir að færa sér þennan forna sið í nyt og létu þarlenda menn læra Ave Maria, Pater noster osfrv. með aðstoð þessara steinahringa. Spánski kristmunkurinn José de Acosta, er starfaði að trúboði í Suður-Ameríku frá 1571 til 1588, segir meðal annars svo frá um þetta: »Það er einkennilegt að sjá fjörgamla öldunga lesa á einum steinahringnum Pater noster (Faðir vor) á öðrum Ave Maria (Bæn til Maríu meyjar) á þeim þriðja Credo (Trúarjátninguna) og að þeir vita hver steinninn táknar: getinn af heilögum anda og hver táknar: píndur undir Pontíus Pila- tus osfrv.« Að kensluaðferðir trúboðanna haíi þó ekki allar verið jafnsnjallar, sýnir saga sú er hér skal greina, og er hún liöfð eftir þýzka málfræðingnum Heinrich Bugsch: Til þess að kenna landsmönnum Pater noster með mynda- letri orðrétt á latínu, létu trúboðarnir mála fána, stein, kaktusfíkju, svo aftur fána osfrv. A tungu landsins liétu nú fáni, steinn og kaktusfíkja pan, tete og nosh, svo að árangurinn af þessari hlutkenslu, sem eflaust hefur verið framin í góðu skyni, varð sá, að Pater noster hljóðaði

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.