Skírnir - 01.04.1905, Side 81
Utlendar fréttir.
i.
Deilur Norðmanna og Svía um konsúlamálið.
Ritað fyrir Skírni af I. Aall-Hansen.
Stjórnmáladeila sú er um þessar mundir stendur milli Norð-
manna og Svía hefur ekki aðeins gagntekið hug og hjörtu manna
í þessum tveim sambandsríkjum, þar sem málið hefur valdið áköf-
um áhyggjum, heldur hefur hún og synilega vakið hina mestu at-
hygli í erlendum blöðum.
Með því að eg hef orðið þess var að Islendingar, sem bræður
Norðmanna, fylgja með athygli rás viðburðanna í sínu gamla ætt-
landi, þá ætla eg að reyna í tímariti þessu að 1/sa því í sem fæst-
um orðum, hvernig stendur á deilunni um konsúlamálið og hvernig
hún hefur gengið.
Að því er mig minnir, þá var það rétt eftir 1890 að vinstrimenn
í Noregi komu fram með kröfu um að fá sérstaka konsúla fyrir
Noreg. Þótti þeim það óréttlátt, að Noregur, sem hafði miklu
meiri skipaútgerð en Svíþjóð, skyldi líka verða að hlíta forsjá
sænskra konsúla og að konsúlar þeirra stæðu undir umsjá sætisks
utanríkisráðherra, er átti að skera úr öllum deilumálum, er konsúla
snerta. Auk þess horgaði norska skipaútgerðin niestan hluta sam-
eigittlegu útgjaldanna til konsúlahaldsins. Því var og haldið fram,
að sænsku konsúlarnir gættu ekki ætíð hagsntuna norsku verzlunar-
innar í erlendum höfnnm. Deildu nú vinstrimenn og hægrimenn
unt þetta. Hægrimenn voru þegar frá upphafi vega fráhverfir
kröfu vinstri nianita, því þeir voru hræddir um að málið mundi
koma Noregi í óheillavæna deiltt við Sviþjóð, og tóku þá vinstri-
menn upp B o d ö m á 1 i ð gamla til að styðja með því réttmæti
kröfu sinttar. Ett þetta ntál var svo vaxið, að fyrir mörgum árum
kom euskt verzlunarskip til Bodö, og neitaði það að greiða toll.
12