Skírnir

Volume

Skírnir - 01.01.1908, Page 40

Skírnir - 01.01.1908, Page 40
40 Sjálfstæðisbarátta Noregs árið 1905. ráðsályktun, sem gerð yar 7. júní, og til þess að samifæra menn um það, að ummæli Michelsens um hina þráðbeinu leið stjórnarskrárinnar voru ekki hégómi, og um það, að skyldu og ábyrgðartilfinningin hafi farið vaxandi í öllum undirbúningnuin. Og eins skal eg geta enn: hafi verið að tefla um nokkura ofsafengna óvild til Svíþjóðar af hálfu norskra stjórnarvalda, þá sýnir það, sem nú hefir verið frá skýrt, að leitast hefir verið við að minsta kosti að láta alls ekkert á þeirri óvild bera. Einkum vona eg, að menn muni hafa séð, hve Hag- erup stjórnarformaður hafði rétt að mæla, þegar hann tal- aði um það, að norsk þjóð þreytti göngu sína í samfeldri fylking, og sömuleiðis séð það, að hin fornnorræna grund- vallar-hugsjón: »Sjalfr leið sjalfan þik« hafi verið fólgin bak við alt, sem gerst hefir. Þetta var viðkvæðið, sem farið hafði eins og stormþytur um sálardjúp norskra leið- toga árið 1814, tengt þá saman á hátiðlegri stund og lát- ið þá vinna heitið, að verða samtaka og dyggir, þar til er Dofrafjöll hryndu. Xú hefir það viðkvæðið farið um alla þ j ó ð i n a, af því að hún hafði öðlast þroska til þessr og það hefir orðið aðalkjarninn í einu því, er fegurst get- ur gerst í lífi nokkurrar þjóðar — þegar sannarlegt sjálfstæði vaknar, fær betur og betur meðvitund um sjálft sig, geng- ur í þjónustu ættjarðarástarinnar, tengir saman alla ein- staklingana á dreifingunni og gerir úr þeim trúarörugga, lijálpfúsa lieild. — Viðíeldið er það að sjálfsögðu að vita, að mikilsvirt- ur þýzkur lögfræðingur, prófessor L. von Bar, hefir fært rökfastar sannanir á það, að Norðmenn hafi átt fortaks- lausan rétt á að stofna alnorsk konsúlaembætti, hafi átt á réttu að standa um það, sem olli sambandsslitum. En fyrst er þess að gæta, að slík lögfræði-skarpskygni er, þrátt fyrir alt, nokkuð köld og stirð og vantar hjartaslög tilfinning- anna; og í öðru lagi mun mega fullyrða það, að sé þetta eina úrslitaleiðin, þá muni mega álasa Norðmönnum fyrir margt og mikið — líka frá lögfræði-sjónarmiði —, og að margt muni koma upp úr kafinu hér og þar, sem menn

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.