Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.12.1908, Side 15

Skírnir - 01.12.1908, Side 15
Gráfeldur. 303 hann fengi taugateygjur. Að minsta kosti mundi hann ekki geta soflð. — Eg ásetti mér að skilja ekki við hann í sliknm raunum, vaka yflr honum og vera hjá honum, passa. hann eins og barn og reyna að hughreysta hann. En eg k v e i ð fyrir því. Á næstu hjallabrún fleygði Jónas sér niður. Hann var fölur í framan og þungbúinn, en sagði ekkert. — Er þér ilt, Jónas? Hann svaraði dræmt: — Já, hálf-ilt í höfðinu. Af þeirri þekkingu, sem eg liafði af Jónasi, þóttist eg vita, að honum væri meira en »hálf-ilt», fyrst hann kvartaði. Þegar hinir náðu okkur, sagði eg þeim frá því, að Jónas væri orðinn veikur. Hann bar ekki á móti því og okkur leizt öllum svo á hann, að hann h 1 y t i að vera veikur. Nú var farið að ráðgast um, hvað gera skyldi. Það var óráðlegt að leggja á fjallið með veikan mann, en enn þá skamt ofan í B-fjörð. Okkur kom því saman um það, að bezt væri að Jónas sneri aftur og reyndi að ná í bátinn. Hann hlaut að sjá til hans út með ströndinni og geta kallað til hans — ef hann yrði þá lagður á stað. Svo var þetta borið undir Jónas. Það furðaði mig þ á, hve fyrirhafnarlítið hann félst á það. Eg bauðst til að fylgja honum, en nærri því var ekki komandi. * Svo stóð hann upp hægt og seint, strauk ennið, kvaddi okkur og lagði á stað ofan eftir. En þegar hann var kominn fáein skref frá okkur kallaði Baldvin til hans: — Góði Jónas — lánið þér mér staflnn yðar og broddana! Eg get ekki gleymt fyrirlitningarsvipnum á Jónasi, þegar hann sneri aftur og rétti Baldvin stafinn og brodd- ana, en tók við prikinu hans í staðinn.

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.