Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.12.1908, Side 19

Skírnir - 01.12.1908, Side 19
Gráfeldur. 307 Menn komu yflr fjallið um kvöldið. Þeir vissu ekk- ert um Jónas heldur. Hátíðin leið og Jónas kom ekki. Þá sendi konsúllinn yfir fjallið til þess að spyrja um hann. Það varð árangurslaust. Jónas hafði hvergi komið til bæja í B firði. Mönnum var safnað til að leita að honum. Við Einar gamli póstur vorum báðir í leitinni. Eg stakk þá upp á því við Einar, að við skyldum ganga upp að Gráfeldi. Þá voru farnar að vakna hjá mér grun- semdir. Við urðum hvort sem var að leita jafnt ólíklega sem líklega. Við gerðum þetta. Þegar við komum upp á hólahjallana fyrir ofan Eyr- ina og fjallið blasti alt við okkur, tókum við eftir ein- kennilegum rákum ofan fönnina á einum stað, sem þ6 enduðu á henni miðri. Þessar rákir gátu varla verið eftir grjóthrun. Þangað fórum við. Þar fundum við Jónas í urðínní fyrir neðan fönnina. Gat var á höfðinu, en likið annars lítið skaddað. — Það var eins og sagan væri skrifuð á fönnina. Hann hafði komist heilu og höldnu ofan alla hamr- ana. En fönnin neðan undir þeim var hörð og snarbrött. Þá vantaði hann bæði staf og brodda til þess að komast hana ofan. Hann hafði þá tekið það ráð, sem algengt er þar á ferðum um fjöllin. Prikið hafði hann sett í handarkrika sinn, lagst á það með líkamsþunganum og látið það rista snjóinn. Jafnframt hafði hann veitt viðnám með hælun- um eftir megni. Þannig hafði hann rent sér á stað ofan fönnina. Af þessu komu rákirnar á fönninni. En á miðri fönninni hafði hvöss stein-nybba, sem stóð upp úr snjónum, orðið fyrir honum. Hún hafði krækst í aðra buxnaskálmina og svift henni sundur. 20*

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.