Skírnir

Volume

Skírnir - 01.12.1908, Page 20

Skírnir - 01.12.1908, Page 20
308 Gráfeldur. Við þetta hafði hann mist jafnvægið og steypst á höfuðið. — — Hefði þetta ferðalag tekist, þá hefði Jónas líklega komist góðri stundu á undan okkur ofan á Gráfeldseyri. Nú lá hann þarna. En Gráfeldur stóð yfir honum sem þögult vitni, er ekki varð á móti mælt. Hann var jafn-tígulegur og svipmikill þótt hann játaði sig nú yfir- unninn. Hin brostnu augu störðu upp á hann og Jónas hafði dáið með hros á vörum. Eg mintist niðurlagsins á kvæði hans um Gráfeld, þar sem hann bað vættir hans að gefa sér það, sem þær sæju honum fyrir beztu. Höfðu þær heyrt bænina? Eg vissi, frá hve beiskum vonbrigðum hann var nú leystur. — -— Og hver veit hve mörg önnur vonbrigði af líku tægi hefðu mætt honum síðar í lífinu? Menn með hans lundarfari mæta tíðum vonbrigðum og þola þau illa. Á meðan eg var að hugsa um þetta, horfði eg framan í líkið, þangað til eg sá ekkert fyrir tárum. -----Hinir leitarmennirnir fundu slóð Jónasar uppi á eggjunum og röktu hana fram á hæstu brúnina á Grá- feldi. Nú snerist athygli alls fjarðarins að Jónasi. Það, sem hann gat ekki áunnið sér í lífinu, hafði hann nú hlotið með dauðanum. »Mjölnir« mintist hans hlýlega. Hann kvað meiri mannskaða að þessum 'pilti en flestir hygðu, því eflaust hefði margt leynst í honum, sem ekki hefði fengið að njóta sín. Eyrir skömmu hefði hann komið til sín með kvæði. Það hefði verið barnalegt að vísu, en þó lýst nokkurri eðlisgáfu. Svo tók hann upp síðasta erindið af kvæðinu. Nú var eins og augun opnuðust á öllum. Nú var eins og þeir fyndu til þess, að i raun og veru hefði þeim verið v e 1 við Jónas. Nú vildi enginn kannast við það,

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.