Skírnir - 01.12.1908, Page 26
314
Ofát.
•öllu sællífi er ofát. Menn fara að sækjast eftir marg-
breyttri fæðu, krydda hana alls konar óhollum efnum og
borða meira en þeim er holt. Og ofátið verður þeim enn
óhollara, sem lítið hafa fyrir lífinu, heldur en þeim, sem
erfiða í sveita síns andlitis. Það er kunnugra en frá þurfi
að segja, hvernig hver stórþjóðin á fætur annarri hefir
skemt sig og úrættast út úr sællífi og orðið undirokuð af
hraustum og harðfengum þjóðum, sem voru aldar upp við
skort og nægjusemi og hertar í erfiðri lífsbaráttu. Persar,
Babýlóníumenn, Rómverjar, Spánverjar o. fl. hafa þannig
orðið að lúta í lægra haldi, og nú nýlega höfum vér séð,
hvernig Rússar fóru halloka fyrir Japönum. Það er álit
flestra, að sigur Japana hafi nær því eingöngu verið þvi
að þakka, að þeir voru óspiltari af alls konar óhófi en
Rússar, og ekki sízt hinu óbreytta mataræði þeirra. »The
yellow peril« eða guli háskinn, sem svo mikið er talað
um á seinni árum meðal hvítra manna, er i rauninni ekki
annað en vond samvizka út af því, hve óhófsamir vér
erum í samanburði við gula menn, og reynslan hefir sýnt,
að nægjusemi er ein af höfuðdygðunum.
Þýzkt raáltæki segir: Der Mensch ist was er isst, en
það þýðir: Maðurinn er það sem hann étur, og er mikið
satt í því. Efnin i líkamanum eru fengin úr matnum,
sem étinn er. Til þess að viðhalda líkamanum og bæta
honum upp þau efni, sem stöðugt slitna og ganga úr sér
við lífsstarfið, verðum vér að borða, og með matnum bæt-
um vér líkamanum upp þau efni, sem eyðast. En þar
að aukí borðum vér til þess að gefa líkamsvélinni hita,
öldungis eins og vér kyndum undir gufukatlinum til þess
að gufa myndist, sem geti hreyft gufuvélina. Maturinn
er því sumpart eldiviður, sem brennur í líkamanum, og
hitinn, sem myndast við þann bruna, er blóðhiti vor, um
37° C.; en sá hiti er nauðsynlegur til þess að efnabreyt-
ingar þær geti orðið í frumlum líkamans, sem viðhalda
lífi þeirra og allrar heildarinnar.
Fæðan þarf nú ekki að vera margbrotin til þess að
líkaminn fái þau efni, sem hann þarfnast sér til viðhalds
og vaxtar, og nægilegt eldsneyti til viðhalds hitanum, því