Skírnir

Volume

Skírnir - 01.12.1908, Page 31

Skírnir - 01.12.1908, Page 31
Ofát. 3L9 að illa tugginn raatur er oas óhollur, og aldrei verður nógu vel brýnt fyrir fólki að tyggja sem allra bezt allan mat. — Danskur tannlæknir, A. Bramsen, hefir öðrum fremur reynt að sýna fram á, hve nauðsynlegt sé að tyggja vel, í bæklingi, sem hann kallar »Kunsten at spise« (Listin að eta), og hefir sá bæklingur hans náð mikillL útbreiðslu og vakið töluverða eftirtekt víðs vegar um lönd. Vil ég í stuttu máli skýra frá kenningu Bramsens, þó að eg sé honum ekki að öllu samdóma. Bramsen segir listina í því fólgna að tyggja nógu rækilega, og það ekki eiuungis alt þurmeti, heldur einnig alla fljótandi fæðu. Þetta kveðst hann sjálfur gera og tyggja þangað til að alls ekkert bragð finst af matnum, eða þangað til alt er orðið vatnsþunt. Þá segir hann, að maturinn renn- ist ósjálfrátt niður. Með þessu móti segist hann ekki þurfa að borða nema þriðjunginn af því, sem hann þurfti áður. En þetta tekur langan tíma í hvert skifti, því að hann situr vanalega þrjá fjórðunga stundar við hverja máltíð. Afleiðingin verður sú, að hann sparar töluvert fé; enn fremur líður honum betur, því að haun finnur aldrei til neinnar óþægilegrar fylli á eftir máltíð; og i þriðja lagi kveðst hann losna við það ómak, að ganga þarfinda sinna á hverjum degi, eins og menn annars eru vanir. Þegar maturinn er svo ýtarlega tugginn, geta meltingarfærin sogið hann því nær allan í sig, án þess að nokkuð fari til spillis. Með öðrum orðum, hann þarf ekki að hafa hægðir oftar en í mesta lagi einu sinni á viku. Og þar við bætist, að hægðirnar eru ekki að eins ofurlitlar, heldur öldungis lausar við allan óþef. Hann lýsir þessum litlu hægðum sínum svo, að þær séu ámóta geðslegar og rjúkandi brauð, nýtekið út úr bakaraofni. — Þetta mun vera nokkuð orðum aukið; en ekki sakar að tyggja eins og Bramsen, og má þá sannfærast um, hvort hann hefir rétt að mæla. Það er annar danskur maður og merkari en Bratnsen,. sem á seinni árum hefir skrifað mikið um mat, og hversu það sé holt manni að gæta hófs, ekki síður í mat en drykk Þessi maður er Hindhede læknir í Skanderborg

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.