Skírnir - 01.12.1908, Page 39
Ofát.
327
að lifa sem ódýrast. Sjálfur segist Hindhede lifa fyrir
.35 aura á dag eða rúmar 10 krónur á mánuði, og sum-
um hefir tekist að lifa enn sparlegar og láta vel yfir.
Til eru þeir, sem hafa komist af með langtum minna,
t. d. tómt brauð og smjör; ekkért annað, nema vatn að
•drekka1).
Fyrir alla efnalitla menn eru kenningar Hindhede
mesti gleðiboðskapur; en engu síður fyrir efnaða. Því að
þeir eiga einnig von á heilsubetra lífi með sparlegri lifn-
aðarháttum.
I Kaupmannahöfn og víðar hafa verið stofnaðir mat-
sölustaðir, þar sem fólki gefst færi á að venjast mataræði
eftir fyrirsögn Hindhede, og eru þessir staðir mjög fjöl-
sóttir. Hindhede hefir sjálfur samið matreiðslubók og
upphugsað samsetning á fjöldamörgum bragðgóðum og
einföldum, ódýrum réttum. Eg vil ráða öllum húsmæðr-
um, sem skilja dönsku, til að útvega sér þessa bók2), sem
bæði er fróðleg og skemtileg. Á heimili minu hefir öll-
um likað vel við þá rétti, sem kona mín hefir matreitt
eftir bókinni, og býst eg við að svo fari fleirum, sem
reyna. Eg hefi þegar fengið þá reynslu á sjálfum mér,
að mér líður að öllu leyti betur, þegar eg gæti hófs um
kjöt og fisk, en neyti mestmegnis jurtafæðu með viðmeti.
Hér á íslandi er kjöt og fiskur víðast hvar langtum
■ódýrara en í útlöndum, og eigi óvíða í sjávarplássum
mun fiskur vera ódýrari og auðfengnari en nokkur annar
matur. Á slíkum stöðum verður erfitt að prédika fyrir
') Á Englandi hafa margir vanið sig á mjög óbrotna lifnaðarháttu
löngu á undan Hindhede. Læknir nokkur, Dr. Cheyne, hefir nú um 16
ár lifað eingöngu á kexi og mjólk — 3f> kvintum af kexi og 3 pottum
af mjólk á dag — og er hann vel ánægður með sitt hlutskifti. Sbr.
Russel: Strength and diet. London 1905.
2) M. Hindhede: 0konomisk Kogebog. Kbh. 1907.