Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.12.1908, Side 53

Skírnir - 01.12.1908, Side 53
Tolstoj áttræður! 341 Kirkjan full af harðstjórn og hégiljum — gjörvöll þjóðin í dróma dæmalausra vanþrifa, og þó ægileg og ógnandi. Þannig var, þannig er þessi Jötunheimur, þessi hin Kalda- Svíþjóð, sem vesturþjóðunum hefir æ staðið stuggur af. Og þetta varð Tolstois fósturland, enda ótal annara ágætra manna, gæddra guðlegum eldmóði, þótt minni orðstír næði, og inargir léti fyr frelsið eða vitið eða lífið, en að þeim entist auðna til aó sýna til fulls hvað í þeim bjó. Á Rússlandi einu verða ódæðin að afreksverkum, og er þá langt komið öfgunum — og örvinglaninni. Sé Tolstoj athugaður í því ljósi, verður hann — ekki minni, heldur skiljanlegri, hann sjálfur og allar hans öfgar. Það er hin siðferðislega hlið hinnar rússnesku stjórnar og siðmenningar, sem Tolstoj hefir eingöngu ein- blínt á. Og það, að hann hefir séð þá hlið eina, er lyk- illinn að einræni hans og miskunarlausa æði gegn öllu, sem siðmenning er annars kallað. Enginn neitar því, að hver þáttur, hver stétt og stofnun vorra tíma siðmenn- ingar — og Rússlands sérstaklega — sé blendið og ísjár- vert og að þjóðirnar þurfi yfirleitt að endurfæðast; en saga þjóðanna, og einkum þróunarsaga allrar menningar, sýnir, að það er ekki siðafræðin ein, sem mannkynið þarf að nema — þótt guðstrú og réttvísi verði ávalt efst á blaði — heldur margt fleira, svo sem þekking, listir, k u n n á 11 a, vísindi, stjórnspeki, lögskil, læknislist og ótölulegar sérgreinar þekkingar, kunnáttu og listar. Tolstoj afneitar öllu þessu og situr við sinn skó! Og þó er enginn keisari voldugri, enginn snillingur meiri og enginn frumherji eða forvígismaður aldar vorrar æðri né afkastameiri en hann. I hverju er sú gáta fólgin? Hún er fólgin í því, að hér birtist Kristur í mann- i n u m, Kristur með Fjallræðuna og guðdóm hins góða, hins miskunnsama, hins réttvísa, Kristur, sem opinberaði alveldi guðs föðurkærleika! Matth. Jochumsson.

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.