Skírnir - 01.12.1908, Page 62
350
ísleuzk heimspeki.
Og enn er sagt um Njál að hann hafl farið einförmrr og-
þulið; má geta þess til, að um sum efni hafi hann ekki
getað talað við aðra en sjálfan sig.
En mjög líkt þessu sem sagan segir um Njál, hefir
verið sagt um ýmsa heimsfræga spekinga á siðari tímum;
þeir hafa farið einförum, talað við sjálfa sig, setið og
horft í gaupnír sér og tekið illa þegar á þá var yrt; þózt
truflaðir í iðju sinni og líklega fundist hún ekki ómerkilegri
en flest önnur, þareð íhugun liggur til alls fyrst. Og lík-
legt er að maður eins og Njáli er lýst, hafi haft huga
líkan þeim mönnum sem vér nefnum heimspekinga, og'
varla er annað trúlegt en að einhvern tíma hafi slíkur
maður rent huga sínum í áttina að einhverju þvi er vér
nefnum heimspeki, eitthvert skiftið er hann stritaðist við
að sitja, förukerlingum og fávitringum til undrunar og
frásagnar. En varla er neitt sem af speki hans segir í
sögunni í þá átt; nema ef vera skyldi að eitthvað slíkt
hafi búið undir er hann varar Gunnar við að vega aldrei
»meir í hinn sama knérunn enn um sinn«. Eins mætti
geta þess til, að frá slíkum vitringum eins og Njáli sé runnin
forlagatrú forfeðra vorra, því að komið gæti manni til hugar
að sú skaðlega og lamandi trú væri ávöxtur nokkurs konar
heimspekilegs skilnings á orsakarsambandinu, þótt óljós sé
og óttablandinn. En þetta er auðvitað lítilsvei’t. Hitt er
víst, að flest sem í sögunni segir af speki Njáls minnir á,
að vitur ei’ víst upphaflega sá sem veit krók á móti
bragði, en ekki sá sem eitthvað veit um uppruna tegund-
anna, eða tilgang mannlífsins, eða þó að minna sé tiltekið;
og spakur er sá sem spáir hvað fram muni koma við
sig eða vini sína. Gáfnafarið hefir verið líkt og hjá
heimspekingnum, en hugurinn ekki frjáls að sveima,
heldur bundinn við þá nauðsyn að verjast hættum á
ófriðarsömum timum, líkt og slíkir hugir hafa oft verið
fjötraðir af þörfinni til að hafa ofan af fyrir sér.
Eftirtektarvert er annars, hvernig Njála gerir þá menn
ýmsa sem hún segir frá að vitringum, eða liklega, réttara
sagt, skilur betur en aðrar sögur hverjir hafa verið vitrir..