Skírnir - 01.12.1908, Síða 85
Erlend tíðindi.
373
Fyrir 30 árum bárust miklar sögur af harðyðgi Tyrkja við
eina hiuna kristnu þjóða í ríki þeirra, Búlgara, með ofboðslegum
hryðjuverkum. Þá reis upp mannvinurinu W. E. Gladstone, hinn
mikli stjórnskörungur Breta, og eggjaði landa sfna lögeggjan að
hefjast handa og duga kristnum bræðrum sínum austur þar. En
þeir daufheyrðust við og lögðu um hríð fæð á Gladstone fyrir þá
talsmensku hans. Hann var valdalaus í þann mund. En þá skár-
ust Rússar í leik og börðust þeim til lausnar. Þá gerðist Búlgaría
hálf-fullvalda ríki, skattgilt undir Tyrkjasoldán. Það var árið 1878.
En sjö árum eftir, 1885, jókst Búlgaríuríki það um þriðjung, með
þeim hætti, að annað skattland soldáns, B,úmilía hin eystri, gerði
uppreist og sagði sig í lög við Búlgara. En soldán fekk engu við
ráðið. Hann gerði sig sáttau á það si'ðar, að þjóðhöfðingi Búlgara
væri jafnframt landstjóri i Rúmilíu hinni eystri. Búlgaría sjálf
liggur norðan Balkanfjalla, milli þeirra og Dunár að norðan.
Þjóðin, Búlgarar, er náskyld Finnum, settist þar að löndum fyrir
14 öldum, og tók kristna trú á 9. öld.
Fyrstu árin eftir lausnina undan Tjrkjum var sá maður höfð-
ingi (fursti) yfir Búlgaríu, er Alexander hót frá Battenberg, vaskur
maður og vel að sér. Hann óvingaðist við Rússa; þeir vildu hafa
hönd í bagga um stjórn landsins, en það vildi hann ekki þyðast nó
landsmenn yfirleitt. Fyrir það fengu Rússar honum hrundið úr
völdum (1886). Þá var tekinu til ríkis Ferdínand prinz af Koburg
(1887) og hetir setið að völdum síðau. Hann kom sér brátt í vin-
fengi við Rússakeisara.
Það gerðist tíðinda i haust, 5. okt., að Ferdínand brá sér til
hins fotna höfuðstaðar Búlgara, er Tirnova heitir, frá þeim timum,
er Búlgaría var fullvalda ríki, á 11.—14. öld, tók sór þar konungs-
nafn með þeirri viðhöfn, er hlyða þótti, og lysti ríkið óhað Tyrkja-
soldáni. Viku síðar, 12. okt., hélt hann dyrlega inureið sína í hina
nyju höfuðborg, Sofíu, og stefndi saman þittgi, er staðfesti þær til-
tekjur og veitti fé til vigbúnaðar, ef til þyrfti að taka, svo sem
við var búist alment. Tyrkir létu og ófriðlega fyrst i stað, en
hikuðu við, er til kom, með því að uppvíst varð skjótlega, að stór-
veldiu sum að minsta kosti létu sér eigi illa líka atferli Ferdiuands.
Etida gerði í sama muud stjórn Austurríkiskeisara og Ungverja-
konungs heynnkunnugt, að hún hefði álimað til fulls og alls ríki
sínu landskika þann á Balkanskaga útnorðanverðum, er nefnist
Bosnía og Herzegowina, og Austurríkiskeisari hafði haft í sínum
vörzlum frá því eftir stótveldafundinu í Berlín 1878, en var þó