Skírnir - 01.12.1908, Side 90
ísland árið 1908.
Frétta-ágrip.
Markverðasti viöburður þessa árs hefir gerst í s t j ó r n m á 1-
u m landsins, en það er starf millilandanefndarinnar og undirtekt-
ir þjóðarinnar og svar hennar við nefndartillögunum. I júlímán-
uði 1907 skipaði konungur nefnd manna, 13 Dani og 7 Islendinga,
til þess að »rannsaka og ræða stjórnskipulega stöðu íslands« og
koma fram með tillögur um málið. Þessi nefnd settist á rökstóla
í Kaupmannahöfn 28. febr. þ. á. Róð hún þar ráðum sínum og
tefldi með tillögur tvo og hálfan mánuð. Hafði hún þá lokið
starfi sínu. Kom þá í ljós, að nefndin öll gat eigi orðið á einu
máli, en skiftist um skoðanir í tvent; annars vegar voru allir
dönsku nefndarmennirnir og sex hinir íslenzku, en hins vegar einn
íslenzki nefndarmaðurinn, Skúli Thoroddsen. Tillögur meiri hluta
nefndarinnar komu fram í frumvarpsformi, »frumvarp til laga um
ríkisréttarsamband Danmerkur og Islands«, en Skúli Thoroddsen
kom fram með breytingartillögur við það frumvarp. Um þær
sömu mundir, er nefndin lagði fram tillögur sínar, kom opið bróf
frá konungi, er tilkynti, að kosningar til alþingis skyldu fara fram
10. sept. þ. á., og að hann (konungur) mundi leggja fyrir alþingi
tillögur nefndarinnar. — Þegar fregnin um nefndartillögurnar
kom til landsins, komust hugir manna mjög á flug út af þessu
máli. Hefir íslenzka þjóðin naumast nokkuru sinni á síðari ára-
tugum orðið jafn-gagntekin af stjórnmálahugleiðingum og þetta
sumar. Ræður manna í milli hnigu mjög að þessu máli. Blöð
landsins fjölluðu að mestu leyti um þetta mál. Fundarhöld voru
um alt land og ræðuhöld mikil. Breytingar urðu á hinni gömlu
flokkaskiftingu. Þjóðin skiftist nú í tvo stjórnmálaflokka. Hélt
annar flokkurinn fast fr* m frumvarpi þvf, er meiri hluti millilanda-
nefndarinnar hafði komist á eitt mál um. Hinn t'lokkurinn var
andstæður frumvarpinu að ýmsu leyti og hallaðist að breytingartil-