Skírnir - 01.12.1908, Síða 93
Island árið 1908.
381
lenda banka. Peningaþröngin nú í árslokin genr útlitið mjög
ískyggilegt, hætt við að peningaskorturinn hafi víðtæk áhrif á hagi
landsmaima, ef eigi verður viturlega ráðin bót þar á.
Samgöngur á sjó hafa verið með betra móti þetta ár.
Strandferðirnar betri en síðastliðið fjárhagstímabil, þótt því fari
fjarri, að þær sjeu fullnægjandi enn. Samgóngur við útlönd hafa
batnaö að stórum mun. Skip Samein. gufuskipafélagsins og Thore-
fólagsins hafa farið svipaðar ferðir og að undanförnu, en skip 0.
Watneserfingja hafa farið miklu fleiri feröir þetta ár en áður, alls
23 ferðir milli Kaupmannahafnar, Norvegs og Islands, (aðallega
til Austur- og Norðurlands). En auk þessa hefir orðið mikil sam-
göngubót að 5 ferðum, er Björgvinjar gufuskipafólagið í Norvegi
hefir látið skip sín fara hingað til lands í sumar. Er þetta að
■eins tilraun, en halda mun félagið áfram ferðutmm, ef árarigurinn
verður góður. — Ti! samgöngubóta á landi er símalagning hið
helzta, er gert hefir verið. Síini hefir verið lagöur á þessu ári frá
Hrútafirði til ísafjarðar og þaðan til Patrtksfjarðar; sömul. á
Austfjörðum milli Eskifjarðar og Fáskrúðsfjarðar.
Ýmsar ákvarðanir frá síðasta þingi hafa komist í framkvæmd
á þessu ári, svo sem stofnun lagaskóla og kennaraskóla,
er báðir tóku til starfa i október /síðastl. Fyrir kennaraskólann
var reist hús sunnanvert í Skólavörðuhæðinni við Rvík en hús-
næði hefir orðið að leigja handa lagaskólanum. — Samkvæmt lög-
um frá síðasta þingi hefir Hafnarfjarðarverzlunarstaður öðlast kaup-
staðarróttindi frá 1. júlí síðastl.
Samkvæmt þingsályktun neðri deildar alþingis 1905 og aug-
lysingu frá landsstjórninni 4. ágúst þ. á. fór fram jafnhliða alþing-
iskosningum 10. sept. um land alt almenn atkvæðagreiðsla alþing-
iskjósenda um þaö, hvort lögleiða skuli bann gegn að-
flutningi áfengra drykkja. Atkvæðagreiðslan fór svo,
að með aðflutningsbanni voru greidd 4897 atkv., en á móti
•3248 atkv.