Ný félagsrit - 01.01.1851, Page 64
64
IY.
UM BÚNAÐINN OG BÚNAÐARSKÓLANA
I NOREGI.
íjg ætla&i mer í fyrstunni ab búa undir prentun feríia-
sögu mína um Noreg og Svíaríki; en eg varb aí) falla
frá því aptur, því fyrri en mig varöi var hún orbin
of laung til af) geta fengiö rúm í ritum þesspm. Mer
þókti nú ekki fara vel aö stytta hana, án þéss aö breyta
forminu, ekki heldur aö skipta henni í sundur og láta
koma út smásaman lítinn kafla á ári. Nú voru ekki
önnur ráb fyrir hendi, til aö koma henni á prent aö sinni,
og eg varö því aö láta af þeirri hugsan. Eg hefi því
tekizt á hendur aö semja ritlíng þenna, sem á aö gefa
stutt yfirlit yfir búnaö Norömanna, og getur hann lítiö
hreift viö öörum efnum en þeim, sem mest snerta aöal-
augnamiö feröarinnar, sem var aö komast eptir: 1) hverjar
korntegundir og grastegundir, af þeim sem NorÖmenn rækta.
þola bezt kulda, eba þurfa minnstan hita til aö ná fullum
vexti o. s. frv., og 2) aö komast eptir fyrirkomulagi bún-
aöarskólanna.
Noregur og Svíaríki til samans eru nes eitt mikiö,
landfast aÖ noröan og austan, og skagar í suövestur frá
Finnlandi. : Eptir nesinu endilaungu gengur fjallhryggur,
sem skilur ríkin aö noröan, en sunnarlega beygist hann