Ný félagsrit - 01.01.1851, Page 157
V ARNINGSSKR A*
157
í fyrra haust var selt fyrir 27—28 rbd. tunnan. þegar frá-
leiö jókst verbiö svo, ab tunnan varö á 31 rbd. og hélzt
þab verö um hrífe. En allt í einu tók fyrir öll kaup á
þessari vöru; kom þah af því, aí> mikih lýsi kom híngaö
frá Noregi, og var það selt med lægra veröi, svo aö veröiö
á íslenzka lýsinu lækkaöi smásaman allt aö 27 rbd.; og
jafnvel hefir veriö selt soralaust hákallslýsi á 26 rbd.;
óseldar eru enn nálegt 400 tunnum.
Af kjöti komu ekki aö heiman nema einar 600
tunnur; var megniö af því selt þegar í fyrra haust til
herflotans á 6—7 skild. hvert pund; en hitt gekk dræmt
út fyrir sama verö.
Af prjónlesi kom híngaö líkt aö vöxtum og hin
árin, nema hvaö talsvert var minna af peisum, hálistum
og sjóvetlíngum. Vandaöir tvíbandssokkar aö norÖan
gengu á 32 og 34 skild.; eingirnissokkar á 28 skild.,
sjóvetlíngar, ýmist á 6 skild. eöa 12 skild. og þar í milli
eptir gæöum; tvíbandspeisur á 72 skild.; hálistar á 14
skild. og allt aö 17 skild.
Af æöardún komu hér 7000 U og voru seld á
2 rbd. 64 skild., eöa 3 rbd. 16 skild. og þar í milli, og
eiga ekki kaupmenn oselt af honum svo teljanda sé, en
talsvert er samt af honum óselt á annari hendi.
Af skinna vöru barst híngaö aö heiman viölíka
og í fyrra, og varb veröiö á henni nú líkt og þá.
Af saltfiski komu hingaö 7000 skippunö og eru
enn af þeim óseld á annaö þúsund; en hitt hefir svo
selzt a& lakari fiskurinn hefir komizt aö eins í 12 rbd.
og 14 rbd. verö, eu vandaöur saltfiskur hnakkakýldur
gengiö á 19 rbd. og 20 rbd. Voru margir skipsfarmar
af saltfiski sendir suöur til Miöjaröarhafs, en hann gekk
þar svo illa út, aí> uppúr sumu af honum liaföist aö eins