Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1882, Blaðsíða 2
2
II. Reikningr
yfir tekjur og gjöld fornleifafélagsins til 2. dags ágústmánaðar 1881.
Tekjur.
1. Félagsgjöld: Kr. Aur. Kr. Aur.
a, ævilangt...............................581 10
b. árstillög .............................• 438 „„ 1019 10
2. Styrkr úr landssjóði............................... 300 „„
alls 1319 10
Gjöld Kr. Aur. Kr. Aur.
1. Prentun og útsending á lögum og
boðsbréfum............................................. 91 93
2. Kostnaðr til Árbókar félagsins fyrir
1880 og 1881.......................................... 556 05
3. Kostnaðr við rannsókn á þúngvelli
1880...................................... 223 „„
Kostnaðr við rannsókn á Hvalfjarðar-
ströndu 1880............................... 101 25
Kostnaðr við rannsókn við Haugavað
1880....................................... 91 „„
Kostnaðr við rannsókn í Dalasýslu og
Jórsnesi 1881 ............................. 182 „„ 25
4. Auglýsingar og ýms smágjöld........................ 13 80
5. í sjóði hjá gjaldkera................................. 60 07
alls 1319 10
Reykjavík, 2. dag ágústmán. 1881.
Magnús Stephensen.
Reikning þenna höfum við rannsakað samkvæmt lögum félagsins.
Reykjavík, 5. nóvember 1881
Bergr Thorberg, H. Guðmundsson.
Á hinu umliðna ári hefir félagið eftir megni reynt til þess,
að vekja áhuga almennings á að vernda fornleifar vorar, og hafa
allmargir orðið til þess að veita því fullting sitt, einkum með því
að senda skýrslur um ýmsar fornleifar og forn mannvirki, sem og
með því að afhenda nokkura forna gripi. þ>að var talið œskilegt
á fundinum, að sem flestir vildi verða til þessa, og það því fremr
sem það ber enn við, að einstaka menn, og það nú fyrir skemstu,
hafa sýnt sig svo rœktarlausa við fóstrjörð sfna, að farga þeim
gripum til útlendinga, sem verða hefði mátt forngripasafni voru til
sóma. Á vetrinum 1880 og 1881 hélt Sigurðr Vigfússon fyrir-
lestra í 4 kveld um líf íslendinga í fornöld, einkum um fornbúninga.