Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1882, Side 10
10
Ólafr konungr lét setja hápall í veizlustofum sínum, ok setti
hásæti sitt á miðjan þverpall“; o. s. frv. f»egar nú að þenna
stað í Fagrskinnu verðr að skilja þannig, að konungshásæti hafi
verið við hinn nyrðra vegg á veizlustofunum í Norvegi, þá kemr
þessi tilhögun vel heim við blóthúsið að þ>yrli; þar hefir öndvegið
hlotið að hafa verið á nyrðra langbekk, (það er að segja að hofið
snýr í útnorðr og landsuðr) og verðr þá afhúsið til hœgri handar,
þegar í öndveginu er setið. J>að er sjálfsagt, að öndvegið í Rúts-
staðahofinu hefir og getað verið við nyrðra langvegginn, þar sem
dyrnar á aðalhúsinu eru út úr miðjum vestra gafli, enn eg held
fremr, að öndvegið hafi þar verið á syðra langbekk, eins og eg
hefi áðr sagt, þvíað þá verðr afhúsið til hœgri hliðar þess, sem f
öndveginu sat, samkvæmt báðum hinum hofunum. í Ljárskógahof-
inu hefir öndvegið verið á hinn syðra langbekk, þar sem dyrnar á
aðalhúsinu eru út úr nyrðra vegg nær vestra enda; hefir þá afhús-
ið verið til hœgri hliðar höfðingjanum, sem í öndveginu sat. þ>að
er því eins í öllum þessum hofum, hvað sem síðar reynist.
Eg hefi getið þess, 'að hofin hér á íslandi muni hafa verið
tvenns konar, höfuðhof og hin, sem eg hefi kallað heimilishof. Höf-
uðhofin vóru nokkurs konar lögboðnar, opinberar kirkjur þeirra tíma,
og vóru menn skyldir að gjalda tolla til þeirra í hverju goðorði,
enn heimilishof mátti víst hver hafa, sem vildi, á sinn eiginn kostn-
að1. Bæði f>yrilshofið og Rútsstaðahofið hafa verið sérstakra manna
eign, sem áðr er sagt, enda er þess heldr eigi getið, að Rútr hafi
átt nokkurn part í goðorði, né heldr f>orsteinn gullknappr að fyrli2,
enn þar á móti er það óhugsanda, að hofið í Ljárskógum hafi ver-
ið heimilishof. Eg hefi sýnt hér að framan, hvé mikill er munr
þessa hofs og hinna tveggja, og aftr hvé mikil líking er á því hofi
og lýsingunni bæði á Kjalarneshofinu og þ>órsneshofinu, sem
menn vita, að bæði voru höfuðhof. Kjalarneshofið var hið mesta hof
hér álandi ásamt hofinu í Vatnsdal.
Hofið í Ljárskógum getr því ekkert annað verið enn höfuð-
hof í goðorði í>órðar gellis og sona hans, og þá hið þriðja höfuð-
hof í f>órsnesþingi. þ>rjú voru goðorð í því þingi: i. goðorðþórð-
ar gellis. 2. þórsnesinga gofforð. 3. Rauffmelinga gofforff. Melabók
1) það er auðsætt, að hinar opinberu blótveizlur hafa verið haldnar
í höfuðhofunum, eins hér og í Noregi, það sýnir hin mikla stœrð á Ljár-
skógahofinu, sem ekki gat haft annan tilgang; enn að því er hin minni hof
snertir, hafa menn getað haft þar veizlur eða minning blóta t. d. fyrir sitt
heimili, enda boðið til sín vinum sínum, enn þó með því móti, að þeir guldu
samt toll til höfuðhofsins; að dýrka guðina þannig hefir víst verið hverjum
manni heimilt.
2) Eg verð að nefna þessa menn saman hér, þó að þeir sé manna
ólíkastir, sem kunnugt er.