Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1882, Page 13
i3
þá ekki hof nema hörgr suðr í Krosshólum, sjá um hörg Árb. i.
h., bls. 8g—92. Reyndar er talað um hof í Hvammi, er þorvaldr
Koðránsson og Friðrekr byskup boðuðu kristni í Vestfirðingafjórð-
ungi, enn þetta hof þarf þar fyrir ekki að hafa verið höfuðhof.
f>að er mjög eðlilegt að þar hafi verið komið heimilishof í kring-
um 985, með því að sagt er: „eftir andlát hennar (Auðar) viltust
frændr hennar af réttri trú“. Fms. 1. b., Kh. 1825, bls. 248—249.
Eg hefi margoft leitað að hoftótt í Hvammi og þar f kring
og síðast í sumar er leið, enn aldrei getað fundið þar nein merki
þess, og aldrei hefi eg getað spurt upp neinar munnmælasögur um
hof þar, og hefi eg þó mjög leitað eftir þeim, enda er það heldr
ekki líklegt, að höfuðhof hafi verið í Hvammi, þar sem slíkt stœrð-
arhof hefir verið í Ljárskógum svo skammt frá.
5>ess má og geta, að hvergi er nefnt hvar höfuðhofið hefir
verið í Rauðmelingagoðorði. Vera má, að það hafi verið á Hof-
stöðum í Miklaholtshreppi eða í Hofgörðum, eins og jafnvel nöfn-
in benda til, enn þá hefir það ekki verið á Rauðamel, sem goð-
orðið þó er kent við og Sel-þórir bjó. Afkomendr hans sýnast
hafa verið mestir höfðingjar i því þingi fram yfir kristni, t. d. þor-
steinn í Haffjarðarey; hann mun hafa verið goði í því þingi, þvi-
að hann tók Rauðmelingagoðorð burt úr pórsnesf ingi eftir deiluna
við Snorra goða, sjá Eyrb.s., Leipzig 1864, bls. 105.
Um stallana í hofunum.
Meðan ekki var nema eitt hof rannsakað, var eigi allhœgt að
gera sér glöggva hugmynd, t. d. um stallana í hofunum, eða hvern-
ig þeim hefir verið hagað, með því að þau einkenni kynni að reyn-
ast öðruvís við rannsókn fleiri hofa. Eg hefi getið þess í Árb. 1.
h., að millumveggrinn í hofunum milli afhússins og aðalhússins
muni hafa verið nokkurs konar aðalskifting eða fortjald milli aðal-
hússins og afhússins sem þess allrahelgasta; eg held og enn þeirri
skoðun, enn eg hygg, að millumveggrinn hafi verið annað meira,
eða hann hafi og aðra sérstaka þýðing, nl. að hann hafi verið bekkr-
inn eða stallrinn, sem goðin stóðu á. það er auðsætt, að ekki
þurfti svo breiðan vegg, sem er enda breiðari enn ytri veggir hof-
anna, einungis til aðskilnaðar þvert um. Hoftóttin á Rútsstöðum er,
sem áðr er sagt, 20 fet á breidd að utan; innanmál eða breiddin
innan veggja hefir verið í mesta lagi 12 fet, og er það lengd mill-
umveggjarins, enn millumveggrinn á þessari tótt er nær 7 fet á
þykt. Eg hefi hugsað mér svo, að á þá brún millumveggjarins,
sem veit til aðalhússins, hafi verið hlaðinn þunnr veggr, sem skift-
ing eða skilrúm í hofinu, og þannig hafi myndazt í afhúsinu stallrinn,
sem goðin stóðu á, og hefir þá alt þetta verið þiljað og tjaldað. Hugsa