Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1882, Blaðsíða 47
47
Rannsókn við Hangavað
eftir
Sigurö Vigfusson
1880.
Eftir það er lokið var rannsókninni í Hvalfirði, þá var mér
mikil forvitni á, að rannsakaðr yrði þessi staðr við Haugavað, og
félst Fornleifafélagið á þetta og að gaman væri að prófa, hvort
það reyndist satt, sem bæði Flóamannasaga og Landnámabók segja
um þenna stað, þvíað þær ákveða skýrt, að hér sé fjórir haugar,
og komast báðar eins að orði um það, hvernig hér til hagi og
hverjir hér sé í haug lagðir. Flm.s., Leipzig 1860, bls. 126—127,
segir: „þ>á var þ>órðr .xv. vetra gamall, er hann hugsar um föður-
hefndir. Hrafn var garpr mikill, en þórðr þóttist ungr. Svá er
sagt eitthvert sinn, at þórðr frétti, at Hrafn var riðinn út í Einars-
höfn til skips ok var einn í reið ok ætlaði heim um kveldit. Hrafn
var í blárri kápu ok gyrðr sverði ok hafði spjót mikit í hendi ok
gullrekinn á falrinn. þeir feðgar höfðu átt spjót þat; hann hafði
eigi við bardaga búizt. þórðr sitr fyrir Hrafni hjá Haugavaði of-
an frá Traðarholti einn samt; hann hafði spjót i hendi, og vill nú
annathvárt hefna föður síns eða fá bana. Ok um kveldit, er Hrafn
ríðr heim, hljóp þórðr at honum úvörum ok lagði á honum spjót-
inu. Hrafn féll af baki, ok skildi þórðr við hann dauðan, ok er
þar haugr hans fyrir austan götuna, en fyrir vestan er Atla-
liaugr okÖlvishaugr ok Hallsteinshaugr1 Landn. Kh. 1843, bl.
305, segir og: „þ>órðr dofni son Atla var þá .ix. vetra; en þá er
hann var .xv. vetra reið Hrafn í Einarshöfn til skips; hann var í
blárri kápu, ok reið heim um nótt. þ>órðr sat einn fyrir honum
hjá Haugavaði skamt frá Traðarholti, ok vá hann þar með spjóti;
1) Landn. nefnir hann Hástein, enn tvö handrit neðanm. kalla hann þó
Hallstein, bl. 31 og 301. Flóamanna s. nefnir hann ætíð Hallstein; skal
eg hér láta ósagt, hvort réttara er.