Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1882, Page 56

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1882, Page 56
56 er ólíklegt, að hér kynni að vera dys Önundar, og hann fluttr heim úr Orrustudal, sem er mjög skamt. Eg tók mynd af mannvirki þessu. í múlanum austr frá Súluholti í Flóa fann eg á heimleiðinni fjögur slík mannvirki, sem mjög eru lík þessum í Önundarholti. þau eru og kölluð dysjar, enn ekki gat eg rannsakað neitt þeirra, því- að eg hafði engin graftól, enda er hvergi í sögum vorum getið um þetta; fór eg svo út að Gaulveijabœ, og þaðan út að Ásgautsstöð- um um kveldið. Föstudaginn, 20. dgúst, fór eg aftr austr að Haugavaði og lauk við þær myndir er eg hafði gert, og athugaði það, sem mér þótti þurfa, og bjó um þá hluti, er eg hafði fundið þar, tók það alt með mér; skildi síðan við þenna stað, og fór út á Eyrarbakka um kveldið. Laugardaginn, 21. ágúst, gerði eg dagbók mína fyrra hluta dags, fór síðan upp að Olfusá til að skoða svo kallaðan Skiphól, sem miklar sögur fóru af. Hann er austr frá Kallaðarnesi skamt frá ánni. Annar hóll er þar líka skamt austr- frá, sem heitir Hesta- þingshóll. í Skiphól hugðu menn vera fólgið skip ; inn í aðra hlið hans hafði verið grafið einhvern tíma fyrir löngu, enn ekkertfanst, enn sáust hvers kyns ofsjónir, eins og vant er að vera. Hóllþessi er nær 20 faðma langr í rótunum, enn mjór, lítt bogadreginn ; á honum eru tvær þúfur. Hóllinn er myndaðr af náttúrunni, margir slíkir hólar eru til, sem nefndir eru Skiphólar. Sama er að segja um Hestaþingshól, hann er og af náttúrunni myndaðr, hann er hár og toppmyndaðr, ofan á honum kynni þó jafn vel að sýnast sem væri eitthvert mannaverk, þar sem hann er að blása upp ; í nánd við hólinn á að hafa fundizt koparhringr, sem hafðr var í kirkju- hurðinni í Kallaðarnesi, enn ekki er hann nú til; sem nærri má geta, sýndist mér ekkert af þessu rannsóknar vert. Síðan fór eg ofan á Eyrarbakka. Sunnudaginn, 22. ágúst, var eg þar kyrr, og gerði við dagbók mína sem eftir var. Mánudaginn, 23. ágúst, fór eg af stað suðr, og kom hingað í Reykjavík kl. 10 um kveldið. niðri á engjum; fór eg þangað og beiddi hann að vísa mér á þessa Onundar- dys, sem hann og gerði, og að ljá mér graftól og lofa mér að rannsaka dys- ina. Undir þetta tók hann nokkuð dræmt, en fór þó heim að sœkja tólin ; var nokkuð lengi inni; kom aftr verkfœralaus, og húsfreyja með honum; eg heilsaði henni vel, enn hún spurði, hvað eg væri hér að gera ? eg sagði henni það; þá fyrirbauð hún mér með mörgum orðum að snerta þar á nokkuru og ef eg gerði það, kvaðst hún mundu ganga burt af bœnum, »og það strax í kveld«; bóndi var ekki skörungr, og lét ekki til sín taka um málið; sá eg þá, að hér var ekkert við að gera, enn ekki mun húsfreyja hafa gert þetta af neinu illu, heldr af því, að hún hugði ilt mundu af því standa, ef Onundr gamli væri grafinn upp; sýnir þetta eftirleifarnar af hjátrúnni enn.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.