Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1882, Page 65
65
hafa því liðið langir tímar, þangað til þetta var í letr fœrt. Síðan
fór eg inn á pingeyri; hún er nokkuru utar enn mitt ámilli Innra
Fagradals og Tjaldaness; milli þeirra bœja er löng hlíð. Eyrin er
nær rennislétt; fremst á henni er lítill höfði, enn örmjótt fyrir of-
an; síðan slær eyrin sér út. Júngeyri er hvergi nefnd í sögum,
enn vel má vera, að jafnvel fornmenn hafi haft hana fyrir einhvern
samkomustað. þ>að er enda líklegt, því að menn höfðu svo víða
samkomur eða mannamót á þeim stöðum, sem hentugir vóru; ekki
sést neitt fyrir tóttum á eyrinni, svo að með vissu verði sagt, enn
yfir hana liggja gamlar götur ofan til, og víðar sést fyrir þeim
þar inn með sjónum; mér var sagt, að þar væri fornar dysjar, enn
engar fann eg þar, sem vonlegt var, þvíað þetta er ekki annað
enn munnmæli. Menn hafa blandað þessari eyri saman við eyrina
við Fagradalsárós, enn það er ekki nema vitleysa. Á fingeyri
er eitt af þeim svo kölluðu Völundarhúsum; enn það er ógreini-
legt. Eg hafði áðr tekið af því mynd. Völundarhús eru hér svo
víða til. Eg hefi séð nokkur. þ>au munu ekkert koma við forn-
öldinni, enn vera öll frá síðara tíma. þ>á er eg fór frá fúngeyri,
hugði eg að, hvar hinir gömlu Kllútsstaðir muni hafa verið. Gull-
þtóris s. segir, bls. 70: „Knútr bóndi á Knútsstöðum sá, at þeir
Steinólfr reru fyrir landit; hann kendi skipit, ok sendi þegar menn
í Fagradal ok stefndi mönnum til naustanna. Hann fór ok þang-
at með sína menn“. þ>að er auðvitað, að Knútsstaðir hafa verið
einhvers staðar á Tjaldaneshlíð, enn það er ekki nóg, þvíað Árni
Magnússon telr upp allar eyðihjáleigur, sem lágu bæði undir Innra
Fagradal og Tjaldanes; undir Fagradal lágu Soffíugerði og Reið-
hvammr. þ>ar fyrir innan hefir ekkert kot getað verið inn að
Deild, sem er landamerkin; undir Tjaldanes telr hann Hnútsstaði,
Horn og Hjalla. Góðan kipp fyrir utan Tjaldanes er lítið dal-
verpi, sem heitir Stekkjardalr. Nokkuð þar fyrir utan er mýri,
sem heitir Kringlumýri. Skamt þar fyrir utan er önnur mýri,
sem nú heitir Byrgismýri, þar fyrir utan kemr Digri Múli. Hjall-
ar heita þar fyrir norðan, og þar hefir það kot verið. Kringlu-
mýri er blaut og óbyggileg. þ>ar hefir víst aldrei verið bœr, enda
er það of nálægt Tjaldanesi; á Byrgismýri er þurrara og byggi-
legra; þar sést líka greinilega að hefir verið bcer eða kot; þar
stendr nú fjárbyrgi, sem mýrin síðar hefir verið kend við. Hér
hafa Knútsstaðir verið, og sést það af því, sem hér að framan er
sagt. jpetta á og bezt við söguna, þvíað þaðan blasir það vel við,
að Knútr bóndi hafi þekt skipin, er þeir jpórarinn reru að vestan.
Síðan hélt eg áfram inn f Saurbœ. Torfnes heitir nú hálendi
nokkuð eða nes, sem gengr fram úr hlíðinni og fram í flóann fyrir
utan Saurhól; þar lét Steinólfr gera hinn fyrsta bœ f Saurbœnum
og kallaði Saurbœ, og þar við kendi hann allan dalinn, Landn.
5 a