Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1882, Blaðsíða 78
78
auðsjáanlega verið borið þangað síðar, því að það lá þannig, að
líkast var, sem því hefði verið steypt þar fram af veggnum, enn
þar djúpt fyrir neðan var hinn upprunalegi grundvöllr eða gólf
tóttarinnar. í aðalhúsinu fundum við lag af fjörusandi, einkannlega
neðan til. þ>að var auðsjáanlegt, að hann hafði verið fluttr þangað
neðan úr fjöru, þvíað í túninu í Ljárskógum er enginn þess háttar
jarðvegr; það var allhœgt að ganga úr skugga um það, því að
Guðmundr bóndi var að gjöra þar miklar túnasléttur í vor, eins og
undanfarin ár; kvaðst hann hvergi hafa séð þar slíkan sand neins
staðar, enda átti eg sjálfr kost á að sannfœrast um þetta; sýnir
þetta meðal annars, að tóttin hefir verið höfð til einhvers sérstak-
legs. Veggi tóttarinnar var ómögulegt að rannsaka að öllu leyti
fyrir klaka, þeir höfðu staðið upp úr um vetrinn áðr, enn snjór legið
í tóttinni innanverðri; þess vegna var þar minni klaki; eg gat þó
á nokkurum stöðum komizt ofan á undirstöðusteina djúpt niðr; ann-
ars held eg, að lítið grjót sé í tóttinni nema það, sem dýpra liggr;
í Ljárskógum er ekki grjót nema að flytja það langt að. Að öðru
leyti var það þýðingarminna, að rannsaka veggi þessarar tóttar,
þar sem lögun hennar var svo glögg og öll kennimerki. J>að verðr
séð með vissu, að tóttin heldr sínu upphaflega lagi, og ekkert vant-
ar í hana, ekki heldr hefir neitt verið bygt við hana síðar eða of-
an í hana. Eg gjörði mér mikið far um að rannsaka gólf þessarar
tóttar, sem fyrr segir, og sannfœrðist eg þá um, að hún hefir aldrei
verið nokkurs konar peningshús, eða rétt, eða heyhús, eða neitt
þess konar, þvíað hvorki fundust þar nein þess háttar merki af
taði eða nokkurs konar gólfskán eða undanlás undan heyi; smiðju-
tótt hefir hún heldr ekki getað verið, enda er það að öðru leyti
ómögulegt vegna þeirrar afarmiklu stœrðar og lögunar, er tóttin
hefir; eins og áðr er sagt, lá gjallið svo grunt, og ekki sást þess
neinn vottr neins staðar í tóttinni nema á þessum eina stað, enn
gólfið hið upprunalega djúpt undir. þessi eru aðaleinkenni tóttar
þessarar: i. þessi mikli millumveggr með engum dyrum á, 2.
gólfið, sem áðr er sagt. 3. öll lögun tóttarinnar, og að hún er
hálfkringlótt fyrir annan enda. Eg tók mynd af tóttinni, sem hér
fylgir með aftan við Árbókina; sjá og hér að framan bls. 15, at-
hugasemd 2. neðanmáls. þ>egar eg hafði rannsakað tótt þessa,
ætlaði Guðmundr bóndi að láta slétta það alt niðr aftr, þvfað hann
var að gera þar mikið við túnið, hvort sem var, sem tyrr segir. Eg
sannfœrðist um, að það sem Grettis saga —Kh. 1859— segir við-
víkjandi Ljárskógum, er alveg rétt; þar stendr bls. 122: ,.þ>orsteinn
hafði látið gjöra kirkju á bœ sínum. Hann lét gjöra brú heiman
frá bœnum ; hún er gjör með hagleik miklum, en utan í brúnni
undir ásunum, þeim er upp héldu brúnni, var gjört með hringum,
ok dynbjöllur, svá at heyrði yfir til Skarfsstaða, hálfa viku sjávar.