Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1882, Page 94
94
ljós þá meining sína, bls. 437 neðanmáls, að þar sem öndvegissúl-
urnar rak á land, muni hafa verið á Jónsnesi, sem nú er kallað,
og að þar muni þ>órólfr hafa sett þingið; hann segir, að þetta sjá-
ist með nokkurn veginn vissu af að bera saman hinn mismunanda
lestrarmáta í handritunum við Landn.b., bls. 97. Eg get nú samt
með engu móti verið þessari athugasemd Kálunds samþykkr,
með því að hann gerir ekki frekari grein fyrir, í hverju þetta liggr
eða hvernig hann skilji þessa staði. Eg get ekki fundið neinn
stað í handr. eða Landn.b., sem stríðir á móti því, að öndvegissúl-
urnar hafi rekið í Haugsnesi, og að þingið hafi verið sett þar.
Landn.b. segir, bls. 97: „far fann hann (fórólfr) þ>ór rekinn á
nesi einu; þar heitir nú pórsnes. þ>eir lendu þar inn frá í váginn,
er þ»órólfr kallaði Hofsvág; þar reisti hann bæ sinn, ok gjörði þar
hof mikit ok helgaði f>ór; þar heita nú Hofstaðir“. þ>etta: „þeir
lendu þar inn frá i voginn“ gæti reyndar að því leyti átt við Jóns-
nes, enn betr á það við Haugsnes, þvíað J>órólfr hefir farið með
skip sitt inn eftir vognum inn fyrir nesið, eftir það að hann hafði
fundið þar öndvegissúlurnar; það var siðr fornmanna, að fara svo
langt inn í voga og ósa sem þeir kómust. „Þar reisti hann bæ
sinn; þar heita nú Hofstaðir“. þetta á hvergi við nema við Haugs-
nes, þvíað, eins og kunnugt er, standa Hofstaðir inn og upp frá
Haugsnesi, rétt við Hofsvog, enn úr Jónsnesi og þangað inn eftir
er meir enn hálf míla. í Jónsnesi er heldr ekki byggilegt, ekki
annað enn klettar og klungr, og mýrarforæði, og jafnvel eigi þar til
hentugr staðr fyrir þingið, enn Hofstaðir gott land, og Haugsnesið
grasi vaxið.
Eyrbyggja saga segir greinilega frá þessu, bls. 7 : „A tang-
annm nessins, sem J»órr liaf'ði á lantl komið, lét hann (J>órólfr)
liafa dóma alla, ok setti þar lvéraðsþing; þar var ok svá mikill
helgistaðr, at hann vildi með engu móti láta saurga völlinn, hvárki
í heiptarblóði, ok eigi skyldi þar álfrek ganga, ok var haft til þess
sker eitt, er Dritsker var kallatt. Lnb., bls. 97, er þessu samhljóða:
„þar d nesinu, sem þórr kom d land, hafSí þórólfr dóma alla ok
þar var sett héraðsþing með ráði allra sveitarmanna. Enn er menn
vóru á þinginu, þá skyldi víst eigi hafa álfreka á landi, ok var cetl-
at til þess sker þat, er Dritsker heitir, þvíat þeir vildu eigi saurga
svá helgan völl, sem þar var“. J>að er því ómögulegt annað, eftir
öllum þeim skírteinum, sem fyrir liggja, enn að öndvegissúlurnar
hafi rekið í Haugsnesi, og þingið hafi verið þar sett, þar sem bæði
Hofstadir og Dritsker er þvi til sönnunar, og alt ásigkomulag ness-
ins, o. fl. Dritsker hlýtr að standa i sambandi við þingið sem við-
burðrinn sýnir. Fremst á nesinu upp frá tanganum er slétt upphækk-
un, eins og myndin sýnir, enn fyrir ofan er bæði þýft og miklu
lægra, þar hafa dómarnir verið, það er skýrt ákveðið, sem fyr seg-