Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1882, Qupperneq 101
101
Frá Gruflunausti og inn í Yigrasker (sem hefir sama nafn enn) er
um ioo faðma; skerið fer í kaf um stórstraumsflœði; innar í firðin-
um eru fleiri sker, enn með því að þeir Steinþór af Eyri og J>or-
brandssynir hittust einmitt hér, og bráðan bar að, þá kómust ]por-
brandssynir í þetta sker1. Ur Gruflunausti og inn í botn á Vigra-
firði er fram undir */4 mílu, Eiðið milli Vigrafjarðar og Hofsvogs
er flatt og liggr lágt. f>að er um ioo faðma um flœði. Frá eið-
inu og út eftir Hofsvog að Bakka hinum meira, eða Staðarbakka,
er og um '/4 mílu; öll leiðin, er þeir Steinþór settu skipið eftir is-
unum, er því rúm hálf míla. J>essar mælingar eru einungis eftir
augnasjón, enn gerðar með ráði nákunnugs manns. Um það eru
enn nokkuð deildar meiningar, hvort Bakki hinn meiri sé Staðar-
bakki eða Kóngsbakki, og svo um það, á hvorum Bakkanum
jþormóðr J>orláksson, bróðir Steinþórs, hafi búið. í sambandi við
þetta er og spurningin, hvernig ísinn hafi legið á Hofsstaðavog, er
þeir Steinþór settu skipið út á skörina. Eyrb. s. bls. 85. Á. Ó.
Thorlacius heldr með því, að formóðr hafi búið á Kóngsbakka,
og þá að Staðarbakki muni vera Bakki hinn meiri, sem eg líka
held að sé rétt. Hann tekr fram um Skeiðin, sem er góð sönnun.
Aftr er nokkuð efasamt um hans meining, hvernig ísinn hafi legið,
þegar það er skoðað í sambandi við söguna, Safn til s. ísl. II
278—279. f>að er ritvilla hjá Thörlacius bls. 279, línu 20., á að
vera „Staðarbakki11 fyrir „Kóngsbakki". Hefir þetta getað valdið
nokkurum misskilningi2. Kálund talar og aftr og fram um þetta
efni, og ber hinar áðr töldu meiningar saman við söguna, enn sýn-
ist þó á endanum ekki komast að neinni verulegri niðrstöðu, ís-
lands lýsing I 447—448. Haldi maðr sér fast við orð Eyrb. s. um
alt þetta efni, er hið rétta auðséð. Tveir eru Bakkar nefndir í
Eyrb. s., sem þessu koma við, „Bakki“ og „Bakki hinn meiri“.
Bakki er nefndr á þrem stöðum: bls. 79, 84, 87, og af öllum stöð-
unum sést, að jþormóðr hefir búið á þessum Bakka. Bakki hinn
meiri er á einum stað nefndr, bls. 84, „íss var lagðr á Hofstaða-
vág mjök svá at Bakka inum meiraíl. Svo segir bls. 85, að þeir
hafi dregið skipið yfir eiðið til Hofsstaðavágs „ok allt út at skör-
inni“. Síðan segir bls. 87: „fluttu þeir hann (Bergþór) með sér
inn eptir ísinum ok svá út yfir eið til skipsins; reru þeir þá skiþ-
inu út til Bakka um kveldiB. f>ar sem nú segir, að þeir reru
skipinu frá skörinni, sem lá rétt við Bakka hinn meira, og út að
1) Orrustunes er nú kallað að vestanverðu við Yigrafjörð á móti Vigra-
skeri. Fyrir 40 árum fanst þar hauskúpa af manni í nesinu við sjó-
inn. Einnig fanst þar síðar, upp frá í holti, gamalt brýni. Hvort þetta
er í nokkuru sambandi við bardagann, skal eg láta ósagt; enginn féll þar
nema Freysteinn bófi. þetta sagði mér Ó. Thorlacius eftir föður sínum.
2) Á. Ó. Thorlacius hefir beðið mig að leiðrétta þessa ritvillu.