Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1883, Page 33
33
til, þar sem hann hét að Hdlsum; bœjarnafnið getr nú verið um-
breytt, því mörg er þess dœmi. þessi Brekkuháls mun því vera
hið innra takmark af landnámi Vesteins, og bœrinn þá kallaðr
Hálsar1.
Fyrir utan Sveinseyri, sem er næsti bœr fyrir utan Haukadal,
eru nú kallaðir Eyrarhálsar, þar er einkannlega einn háls, sem
gengr fram úr fjallinu og til sjóar; hann er með klettum að fram-
an, svo aldrei verðr komizt fyrir hann; verðr því jafnan að fara
uppi yfir þann háls. þ»etta er eflaust hdls enn ytri, sem Landn.
talar um, sem áðr er getið, því aðrir hálsar eru hér ekki til2.
Enn svo eg hverfi aftr að landkaupi þorbjarnar súrs og sona
hans, þá getr verið, að Vesteinn hafi áðr selt Eiríki hinn ytra hlut
af landnámi sínu, eða þá hálfan Haukadal, ellegar á einhvern hátt
látið þetta af hendi, og þannig hafi þorkell Eiríksson átt hálfan
dalinn, sem fyr sagði, og hann selt þ>orbirni.
þ>ó að hvergi sé getið um þetta, þá er ekkert sem stríðir á
móti því , hvorki í Landn. né Gíslas., miklu fremr benda sögurnar
á, að einhvern veginn muni þessu þannig farið, þar sem Vesteinn
lét ekki af höndum nema hálfan Haukadal, enn átti hann þó all-
an áðr, og meira land á báðar hliðar, og hann bjó þar ekki sjálfr
nú ; hefði svo verið, myndi Gíslas. geta um það, þar sem Gisli átti
dóttur Vesteins. Alt þetta bendir á, að Vesteinn hafi verið búinn að
lóga þessum hlut af landnámi sínu, og það til Eiríks eða þ>orkels,
sem einmitt seldi porbirni land. það er ekki efamál, að Súrssynir
hafa átt allan Haukadal; annars var þar ekki nóg land fyrir tvö
stór bú, og þar að auki fyrir fjögr önnur smærri býli, sem öll hafa
hlotið að liggja undir heimajarðirnar. J>etta er að vísu getgáta,
enn hún styrkist af nokkrum ástœðum, og þannig má koma sam-
an Landn. og Gíslas. um þetta efni.
Lórðr Víkingsson hefir verið einn göfugastr maðr í Dýrafirði,
því hafi hann verið sonr Haralds hárfagra, þá er ekki langt til
tignarinnar; landnám hans var að norðanverðu f Dýrafirði, að ut-
anverðu, Landn. s. bl. 145: „pórðr hét maðr, Vfkingsson, eðr son
Haraldar konungs hárfagra; hann fór til íslands, ok nam land milli
þúf'u á Hjallanesi ok Jarðf'allsgils; hann bjó f Alyiðru; þórðr
átti þjóðhildi, dóttur Eyvindar Austmanns, systur Helga ens magra.
1) Beint niðr undan Brekkuhálsi sést móta fyrir gömlum þvergarði,
sem liggr niðr úr hliðinni og alt ofan í sjó. það eru munnmæli, að Dýri
hafi bygt þenna garð. Maðr nokkur hefir bygt þar kot nýlega, sem hann
kallar Dýrhól.
2) þetta um Eyrarhálsana hefir sagt mér Bunólfr Magnús, skólapiltr,
sonr síra Jóns, sem nú er prestr á Söndum í Dýrafirði; Bunólfr er upp
alinn í Dýrafirði og þar mjög kunnugr.
3