Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1911, Blaðsíða 88
90
6096 a-e. «/u
6097. **/M
6098. 10/la
6099. »/u
6100. u/i2
6101. »°/ia
Jón Jónsson, Möðrufelli, Efjs.: Fjalir með útskurði, fimm
að tölu, fornar, úr byggingu; a., 1. 140 sm., br. 27 sm.,
annars yegar skorin, dálítið upphleypt, uppmjó strýta
og efst á henni er sem spjótsoddur, en fyrir neðan
hann ganga út beygjur eða greinar og þar neðan undir
þverálma (1. 18 sm.). Neðst er skorið ofan í spiruna
eins konar hnútaverk, mjög fornlegt, og vantar þar
neðan af. Á þessari fjöl er að eins lítið bil autt fyrir
ofan spíruna (um 12 sm.) og hefir þar nýlega verið
sagað af endanum. Á b. er efri hluti af sams konar
spíru, um 46 sm., og hefir verið sagað af þeim enda;
af efri endanum hefir ekki verið sagað (nýlega) og er
fjölin öll 134 sm. að L, en slétt öll fyrir ofan spíru-
oddinn; br. 26 sm.; c. er með sams konar oddi, lítill
bútur, sagað af báðum endum, 1. 54 sm., br. 26; d. bútur
með svipuðum oddi, nokkuð frábrugðnum, 1. 48 sm., br.
25 sm.; e. þriðji búturinn með frábrugðnum oddi, 1. um
62 sm., br. 28 sm. — Gerðin á þessum útskurði er helzt
í gotneskum stíl eða svipuð honum. Ef til vill eru fjal-
irnar úr kirkjubyggingu í nágrenninu. Þær munu
naumast yngri en frá 14. öld.
Stefán Sigurðsson, Hvitadal: Tóbaksbaukur úr mahogni,
með nýsilfurhringum um stútinn og tappann, og silfur-
hring um botnopið; T er skorið á töppina; baukinn
átti Tómas Guðmundsson, er nefndur var víðförli.
öskjur, sporöskjulagaðar, 1. 32 sm., br. 20 sm.; lokið
með útskurði, stendur á því ANO (sic) 1780 og I. S. D.
með höfðaletri, sem eru upphafsstafir Ingibjargar Sig-
urðardóttur, seinni konu langafa seljandans; hét hann
Guðni Guðmundsson, bjó lengst á Sleggjulæk; hann bjó
til öskjurnar og gaf Ingibjörgu.
Skarbítur úr kopar, íslenzkur, stendur á 3 fótum, með
broddi fram úr; 1. 15 sm. Átt hefir fyrrum Sæmundur
ögmundsson í Eyvindarholti, faðir séra Tómasar á
Breiðabólsstað.
Dr. Jón Þorkelsson skjalavörður: Upphafsstafa-upp-
dráttur, stafirnir P. T. D., skrautlega uppdregnir með
bleki á pappír; st. 21X15 8m- Fundinn í gamalli bók.
Nál úr beini, breiðust (1,3 sm.) fremst og flöt, l. 12,8
sm.; að líkindum til þess að sauma með meldýnur.