Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.04.1881, Qupperneq 17
89
Á þessu hefir mér ekki sjálfum gefizt neinn kostur,
en eg skal telja nokkur atriði, sem munu eiga við fisk
þennan hjá oss. íútlöndum hafa fiskfræðingarnir verið
í miklum vanda með að flokka bleikjutegundirnar, og
eru þær helztu, sem taldar eru, salmo salvelinus og sal-
mo alpinus, er einnig báðar munu vera hér. Allar
bleikjur halda sig í mjög djúpum og svölum vötnum,
þar sem hita- mismunurinn er ekki mjög mikill, eða
jafn svalt er. f>að er einkum um hrygningartímann,
sem ber mjög misjafnt að hjá hverri tegund, að þær
koma nær landi eða grynna á sér, eptir sem þeim
þykir bezt henta, til þess að fáhæfilegan hrygningar--
stað. J>ær hrygna allajafna í stöðuvatninu, en þó mun
sú tegundin, sem kölluð er s. alpinus, og sem vér
gætum kallað fjallableikju, ganga upp í fljót eða læki
til að hrygna. En eptir því þykjast menn hafa tekið,
að hafi bleikja farið úr vatni sínu upp í læk eða ár,
sem renna í vatnið, þá hrygna þær þar ekki, ef að
sandbotn er fyrir, heldur hverfa aptur án þess að
hrygna. Á stundum kemur það fyrir, að í net veiðast
einungis svilfiskar í einu, og aptur á öðrum tíma að eins
hrygnur. Á Englandi er talið, að sumar bleikjur hrygni
eptir réttir, og í nóvembermánuði, en sumar frá því í
desember og fram allan janúarmánuð. Mér hefir verið
sagt, að í þingvallavatni séu tveir got-tímar fyrir silung
þann og bleikjur, sem eru í vatninu. Báðir vara um
4 vikur, og byrjar annar um 20. júlí, en hinn um 20.
sept. |>að eru sjálfsagt sérstakar fiskitegundir, sem
hafa hvor fyrir sig þennan misjafna riðtíma, og þyrfti
að rannsaka þetta. Að líkindum er það bleikja, sem
kölluð er thymallús, sem hrygnir fyr. Væri það svo,
að góður silungur eða bleikja hrygndi um hásumar,
mætti hæglega klekja þessum fiski út um sumarið með
reglulegri fiskirækt, bæði til viðkomu í vatninu sjálfu,
Tímarit hins íslenzka bókmentafélags. II.
6