Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.04.1881, Blaðsíða 82
154
ál., sem innihaldi af vatni, hinn minni 502 teningsfet,
hinn stærri 1553, ef að í hvom pollinn streymi úr ein-
um í annan 37,6 pottar á sekúndunni. Með þessu að-
rennsli fá fiskarnir af vatni í pollinum, þeir smærri 5
potta, þeir stærri 24 potta. þ>ar á móti segja aðrir, að
fiskur, sem sé 9% þuml. á lengd, þurfi 300 potta af
vatni, en þar er ekki talað um endurnýjun vatns með
aðrennsli. Af þessu, þó að því ekki beri saman, má
sjá, að allrar varúðar verður að gæta, og að þeir, sem
taka sem minsta fiska til flutnings, hafa meiri vissu
fyrir sér, að þeim geti tekizt það.
En þar sem það ætíð er mjög stopult, að flytja
fiska í einföldum tilfæringum, skal eg lýsa flutnings-
íláti, sem vel hefir gefizt, og sem kent er við mann
þann, er fyrst bjó það til, að nafni Bienner. í Hiinin-
gen hefir það verið brúkað í 15 ár, og fluttir í því
stórir laxar eða silungar. Sjálft ílátið er svo, að eg
ímynda mér, að hægt sé að búa til flutningsílát ept-
ir sömu grundvallarreglum, þó það sé ekki alveg
eins. þ>að er sívöl kista úr járnþynnu, og ofan
á henni er lítið lok eða op, til þess að láta fiskinn
inn um. Lengd kistunnar er frá 23 til 49 þuml., þver-
mál frá 13^/2—23 þuml. Kistan er fylt með vatni tvo
hluta hæðar af þremur. í neðri hluta kistunnar að
innan er látinn tvöfaldur eða annar botn, sem er með
mörgum smágötum, dálítið upphvelfdur, og myndast
þannig með þessum efra botni og hliðum kistanna hvolf,
sem tekur við lopti því, sem leitt er inn þar á milli
með pumpu. En hún er nú ekki nema hol kúla úr
Kautschuk eða Guttapercha,. sem næst 4þuml. að þver-
máli með tveimur opum, hverju á móti öðru, hvert
þeirra tæpur J/2 þuml. að þvermáli. Kúlan er látin
vera í hvylft, sem er grópuð niður ofan á kistunni, til
þess að kúlan ekki rekist í eða hreifist. Neðra opið
á kúlunni er sett í samband við neðra hvolfið milli