Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.04.1881, Síða 60
»32
sagt frá, og sumir málmvef úr zinki eða fléttinga úr
viðjum.
Slím það, er jafnvel tærasta uppsprettuvatn setur
á hrognin, og sem ekki gjörir skaða, nema það verði
ofmikið, máfæra út um málmþráðs-gaflana á útklaks-
kössunum, ef að þeim er lypt lítið eitt, eða þeir eru
hristir varlega. það þarf því ekki að hreinsa eggin
með pensli, þó það sé betra ef til vill. þ»að er og
gott við hina litlu útklakskassa, að í þeim er svo hægt
að gæta að því, hver hrognkom ekki muni ungast út.
Ef að kassinn eptir 3—4 vikur eða jafnvel fyr er tek-
inn upp úr vatninu í nokkrar mínútur, þá verða hrogn-
kornin af áhrifum loptsins hvít og ógagnsæ, ef að þau
eru ófijó, og það enda þótt þau áður hafi verið glæ.
í>að er því hægt að taka þau burt með lítilli töng eða
klýpu, en þau kornin, sem eru frjóvguð, og farið er
að sjá til augna í, skaðast ekki, þó þau komi í bert
lopt, ef þau að eins ekki verða þurr að utan. Sé þetta
gjört 3 eða 4 sinnum, er vissa fyrir, að þau hrogn-
korn, sem ekki hafa breytzt, eru alveg óskemd. Straum-
urinn í þessum útklakskössum verður svo hreinn og
góður i gegnum lögin, sem hrognin eru lögð i, ef að
á botninum i aðalkassanum er lagt lag af grófum
sandi eða möl, að hægt er að láta laxaeggin liggja í
minst 2 eða jafnvel fleiri lögum, þannig að vatnið leiki
í straumi utan með þeim ; en þó efast eg um, hvort
þetta sé ráðlegt, þar það mun í öllu betra að hafa
röðina einsetta. Professor Rasch telur samt fulla vissu
á því, að i útklakskassa af þessari stærð verði klakið
út 10,000 laxaeggjum, og með því að í aðalkassanum
eru 16 útklakskassar, má með þessari tilfæringu, sem
ekki þarf stórt húsrúm, klekja út 160,000 laxungum,
ef það er rétt sem hann mælir.
þ>að má og fóðra úngviðið í þessum útklaksköss-
um, eptir að það er búið að missa kviðpokann, og