Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.04.1881, Qupperneq 100
172
gríntsson og Tómas Sœmnndsson* 1. Rit þetta bar af
öllum ritum þar á undan, þvi að það var að öllu
leyti mjög vandlega úr garði gjört; bæði var það
með fögru og vönduðu máli og fjölbreyttu og fræð-
andi efni. f>ar var áþreifanlega sýnt fram á vand-
kvæði íslenzkra menta, tungu og þjóðernis. f>ar var
vísindaleg ritgjörð um heimsmyndunina, mest eptir
kenningu Cuviers, sem að mörgu leyti breytti skiln-
ingi og skoðunum á fyrstu kapítulum biflíunnar, og
líkaði mörgum það illa; sömuleiðis var þar hið fagra
æfintýri Tiecks: „Eggert glói“ (Der blonde Eckhart),
og kaflar þýddir eptir hina frægustu höfunda, er þá
voru uppi (Heine o. fl.). f»að var hvortveggja, að
íslendingar voru óvanir við það, að sett væri ofan í
við þá, því fáir höfðu áður haft nein afskipti af þeim
til annars, en að hafa einhvern hag af þeim, og svo
voru slík vísindi sem heimsmyndunar-þátturinn og æfin-
týrin sjaldséð hér — enda var ekki tekið vel við Fjölni
fyrst. Margir rifu hann niður, en lásu hann samt í á-
kafa. Mönnum þótti ritningu sinni misboðið2, og þar
og namlögfræði, oglaukprófi 1837. Var um tíma »Volontair«
(skrifari án launa) í rentukammerinu. Árið 1844 sýslumað-
ur í Skaptafellssýslu, en fór eigi þangað. Varð árið 1845
»fullmektugur« í rentukammerinu. 1848 skrifstofuforingi og
litlu síðan forstjóri hinnar íslenzku stjómardeildar (Departe-
mentsdirecteur) í Khöfn. Hann dó 18. okt. 1851.
1) Tómas Sœmundsson er fæddur 7. júní 1807, útskr. úr
Bessastaðaskóla 1827, og fór utan samsumars. Hann lauk
prófi í guðfræði 1832 með lofseinkunn, og fór sama ár á eigin
kostnað suður um þýzkaland, og kynti sér háskólana þar,
og var um veturinní Róm. Næstasumar fór hann til Grikk-
lands, Miklagarðs og Litlu-Asíu, svo til Parísar og Lundúna,
og svo til Khafnar í maí 1834. 1835 varð hann prestur að
Breiðabólstað í Fljótshlíð, og næsta ár próf. í Bangárvallasýslu.
Hann dó 17. maí 1841.
2) Sbr.: » . . . . bændurna rekur ráðalausa ritningar
sinnar orðum frá« (Sigurður Breiðfjörð). Margir af hinum ment-