Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1883, Qupperneq 121
259
slíkt verðr mjög af handahófi, eftir því sem hverjum
þykir. Ég hefi reynt mig á þess konar reikningi og
get vel komið honum fyrir á pappírnum eftir handa
hófs áætlunum, enn ég tel hann mjög óvissan sem
alment dœmi, enn vel kann hver einstakr að geta
notað hann með því að láta áætlanirnar vera sjálfum
sér samkvæmar ár eftir ár.
Ég hygg óbrotnast að haga búreikningi svo, að
hafa tekjumeginn allan ágóða af búsmalanum, af garða-
rœkt, af sjóróðrum, af vinnu utan heimilis, sem kaup
fyrir rennr inn í búið, arð af hlynnindum m. m.; aftr á
móti útgjaldameginn öll skyldugjöld, sem á búinu hvila,
framfœri heimilisfólks til fata og matar, áætlaða upp-
hæð fyrir fyrningu og viðhaldi húsa og búshluta,
m. fl.
Ég ætla nú að búa til alment dœmi, sem hafa
mætti til hliðsjónar, þá er semja ætti reikning yfir
hlynnindalausan búnað í sveit með eðlilegum tilbreyt-
ingum. Ég læt heimilið vera við góðar bjargálnir,
fólksástœður sœmilegar og fólkið eigi fleira enn svo,
að það hafi nóg að gera við stundun búsins. Veiting-
ar geri ég jafnar og allgóðar alt árið, kaupgjald í
betra lagi, jörðina meðalhœga slœgnajörð. Jeg set
að fólkið sé: hjónin, bæði vel vinnandi, þrjú börn
þeirra á ómagaaldri, vinnumaðr, smalapiltr og 2 vinnu-
konur, als 9; enn þar við bœti ég til fœðis sem svar-
ar kvenmannsfœði um árið, og er það eigi of mikið
fyrir töku kaupafólks og fyrir gestum, sem greiði er
veittr. Ég tel því til forsorgunar á fœði 3 karlmenn
og 7 kvenmenn.
Búreikninginn, sem ég byrja í fardögum, læt ég
byrja á því að skrifa upp búið og virða það, svo sjá
megi, hver bústofninn sé og hverju skila eigi jafnvel
standandi í fardögum næsta ár.
Xímarit hins íslenzka Bókmentafélags. IV. 17