Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1889, Page 12
12
njóta ókeypis ágætrar kenrislu um 15 ár. J>etta
frjálslega fyrirkomulag hefur smámsaman komizt á
í öllum ríkjum, og una menn vel við það. Skóla-
skylda er að eins í 15 ríkjum og 6 fylkjum (terri-
tories). Bandaríkjamenn vilja vera sem óháðastir í
öllu, og það hefur veitt torvelt að fá lögleitt, að
foreldrar væru skyldir til að senda börn sín í skóla,,
eins og svo víða viðgengst í Norðurálfu.
Mðurskipan námsgreinanna.
Fast ákveðið fyrirkomulag á kennslu er eigi,
nema í þeim skólum, sem að meira eða minnaleyti
eru stigskólar. Niðurskipun námsgreina er svipuð
í öllum stigskólum, hvort sem þeim er skipt í þrjá
fjögurra ára skóla eða eigi.
í byrjendaskólunum er kennt öll fjögur árin:
Lestur.
Skript.
Rjettritun.
Enska.
Stýll (composition).
f»ýzka.
í miðskólunum
Reikningur.
Hlutfræðsla (object teaching).
Dráttlist.
Söngur.
Landfræði.
Siðfræði og háttprýði.
er bætt við fyrsta árið mann-
kynssögu og málfræði; annað árið er bætt við nátt-
úrusögu og eðlisfræði; þriðja árið er bætt við bók-
stafareikning eða mælingafræði, líffærafræði og efna-
fræði, og fjórða árið er bætt við upplestraræfing-
um.
í yfirskólunum er fyrsta árið bætt við fagur-
ritan, framburðaræfingum, tungumálum, og aukin
náttúruvísindakennslan; annað árið er bætt við hag-
fræði; þriðja árið mælskufræði, og fjórða árið hugs-
unarfræði og heimslýsing.
J>ess verður að geta, að hætt er að kenna sum-