Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1889, Síða 134
134
unganna Haralds og Eiríks hafi staðið lengi, og
hafi ýmist verið gerðr friðr milli þeirra, eða öllum
sáttum slitið, enda er ólíklegt, að Haraldr hafi ekki
komið austr í Vík og til Vermalands fyr en um
890. Sennilegast er, að Eiríkr konungr hafi lagt
undir sig Vermaland og Ránriki eptir dauða Gutt-
um stendr, hafi gerzt á yngri árum hans, enda hlýtr
saga skáldanna sjálfsagt að hafa gerzt fyrir 900, því að
Egilssaga segir, að Auðun illskælda hafi verið skáld Há-
konar svarta, og hin skáidin eru nefnd ásamt honum um
það leyti, sem Haraldr varð einvaldr (Eg. 8. k.), og er
lítt hugsanlegt, að þeir hefðu ratað í vandræði sitt um
eða eptir 920, enda er Hrólfr nefja (afi Göngu-Hrólfs)
talinn einn í ferð þeirra, og hefir hann hlotið að vera
hniginn á efra aldr um 880, en Ingigerðr, dóttir Haralds
hárfagra, hefir aptr á móti ekki getað verið orðin gjaf-
vaxta fyr en undir 890, og það því að eins, að hún hafi
verið dóttir einhverrar af fyrstu konum eða hjákonum
Haralds. Hún er nefnd bæði í Hkr., Ól. s. Tr. (Fms.
I.) og 01. s. h. (Fms. IV.), þar sem börn Haralds kon-
ungs eru talin upp, en hvergi er getið um gjaforð henn-
ar nema í Hauks þætti. Hkr. (bls. 63) kallar hana dótt-
ur (Alfhildar eða) Ashildar Hringsdóttur, er virðist hafa
verið ein af seinni konum Haralds, en sögurnar greinast
mjög um móðerni ýmissa barna Haralds konungs, og þar
er meðal annars ruglað saman börnum þeirra Alfhildar
og Gyðu Eiríksdóttur af Hörðalandi, sem sögð er ein af
fyrstu konum Haralds. þannig er Guðröðr (skirja) tal-
inn sonr Gyðu í flestum konungasögum (Fms. I. 4.; X.
182.), en Hkr. telr hann son Ashildar; aptr er Ólöf (ár-
bót) talin dóttir Áshildar í Fms. X., 196. (sbr. Fms. I.
5. neðanmáls), en Hkr. telr hana dóttur Gyðu. Hefði
nú Ingigerðr verið t. d. dóttir Gyðu og fædd skömmu
eptir að Haraldr varð einvaldr í Noregi (um 872), þá
gat það vel átt sér stað, að Haraldr gipti hana Eiríki
Svíakonungi skömmu fyrir 890, þótt Eiríkr hafi þá hlotið
að vera orðinn nokkuð gamall (um sextugt ?), og Hálf-
dan svarti, bróðir hennar (fæddr um 870 ?), gat verið
farinn í hernað um 890, og mátti þá flytja hana brott
með sér, er Svíar vildu blóta henni, og höfðu flutt hana
í ey nokkra, eins og segir í Hauks þætti.