Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1899, Síða 6

Eimreiðin - 01.01.1899, Síða 6
6 trúarmanna og húmanista batnaði líka eftir 1530, þegar menn hugðu siðbótina úr allri hættu. Lúter sá, að hin nýja mentun var alveg nauðsynleg andlegum og veraldlegum embættismönnum í þeim ríkjum Þýzkalands, er fylgdu kenningu hans. Melanchton, sem var beztur kennari á öllu Þýzkalandi, hjálpaði honum þá til að koma þessu á við háskóla og aðra skóla mótmælenda, endur- bæta kensluna þar og fá til kennara og kenslubækur. Hann endurbætti háskólann í Wittenberg, og eftir honum voru svo allir háskólar mótmælenda sniðnir, þar á meðal vor; hann réð og til- högun kenslunnar í lærða skólanum í Wittenberg, sem varð fyrir- mynd allra lærðra skóla meðal mótmælenda á Þýzkalandi, æðri sem lægri. Fornmálin einkum latínan, fengu nú fast sæti meðal kenslugreina, bæði á háskólum og i lærðum skólum; var þetta upphaf þess kenslufyrirkomulags, sem síðan hefur haldist, að því er fornmálin snertir, alt til þessa tírna. Takmark kenslunnar í hvorutveggju skólunum átti samkvæmt skilgreining Jóh. Stúrrns, skólastjórans fræga í Strassborg, að vera sapiens et eloquens pietas, »vitur og mælsk guðrækni«. Hefði Eras- mus sjálfur ekki getað fundið fegurri einkunnarorð. Svo kendu menn í næstu tvær aldir með þetta takmark fyrir augum. En í reyndinni varð árangurinn ekki alveg svo glæsilegur. Mönnum tókst raunar að kenna pietas, sem var lútersk strangtrúar-guðrækni. Barnalærdómskenslan í skólunum og guðfræðiskenslan á háskólun- um stefndu af alefli að því takmarki. Jafnvel við málfræðisdeild háskólanna var kenslunni hagað eftir þvi, sem guðfræðin heimtaði. Málfræðingur einn sannaði, að hin 10 lagaboðorð guðs væru sett fram í sérhverjum sorgarleik Sófoklesar. Annar skýrði »Meta- morfósur« (Myndbreytingar) Ovíðs og taldi þær vera sannarlegan mentafjársjóð (tkesaurus eruditionis), er menn gætu lært af kristna trú og siðfræði, en auk þess líka landafræði, náttúrufræði og stjörnufræði. Menn lögðu og hina mestu stund á eloquentia (mæl- skuna), nálega meiri en á pietas (guðræknina). Takmark kensl- unnar i lægri skólunum var frá upphafi til enda að kenna börn- unum að tala og rita hreina latínu, ekki einungis óbundið, heldur og bundið mál (því kveðskaparlist hugðu menn að allir gætu lært). Svo héldu menn fram sömu stefnunni við heim- spekisdeild háskólanna með ræðuhöldum og rökræðum (declama- tiones et disputationes) á latneskri tungu. En úr sapientia (vizkunni) varð heldur lítið, og það var engin furða, því frá upphafi til enda
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.