Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1901, Qupperneq 35

Eimreiðin - 01.01.1901, Qupperneq 35
35 kom hann fram, heilsaði Sigurði með virktum og bað hann að setja sig inn, en þegar Sigurður kvaðst ekki mega vera að því, en aðeins ætla að fá að tala við hann nokkur orð í einrúmi, var sem kæmi ósjálfráður titringur í andlitsvöðva Hafliða, líkt og kvíðahrolli slægi að honum, hann setti samt á sig gleðisvip og og sagði: »Pað er ekki hægt að tala um vandamál úti í þessu veðri, komdu heldur inn fyrir, það er þó lakur skúti, sem ekki er betri en úti.« »Nei, þakka þér fyrir, Hafliði minn; ekki núna, en vænt þætti mér um, ef þú gætir skroppið með mér eitthvað heim á leið, ég þarf að spjalla um ýmislegt við þig, en er orðinn heldur naumt fyrir með tímann, eða hefirðu ekki neina dróg heima við?« »Jú, hestarnir eru hérna rétt við túnið, svo ég skal fylgja þér hér út á göturnar,« sagði Hafliði, tók beizli ofan af uglu, sem var á þilinu og gekk á stað ofan túnið. Innan skamms kom hann með hrossið, snaraði hnakknum á og skrapp svo inn, að fá utan yfir sig. Þegar hann kom fram aftur, var hann með flösku og staup og bauð Sigurði, hvort hann vildi ekki fá sér »einn gráan«, og þáði hann það fúslega. Pegar þeir svo voru komnir út fyrir túnið, hóf Sigurður máls: »Hefirðu nokkuð hugsað þér, Hafliði minn, hvernig eða hve- nær þú munir geta látið mig fá þetta lítilræði, sem ég á hjá þér?« Pað var auðséð á Hafliða, að þessi spurning kom ekki flatt upp á hann, hann hafði lesið hana út úr andlitinu á Sigurði, þegar þeir heilsuðust á hlaðinu, en þó gat hann ekki að sér gert, að hálfkippast við, þegar hann nú heyrði hana, og hann andvarpaði um leið og hann sagði: »Ég veit nú varla, Sigurður, mér finst það nú meira en lítil- ræði, 200 krónur, það er engin smáræðis upphæð og ég er efna- lítill, mér finst meira að segja heldur vera að ganga af mér; en ég veit að ég þarf að borga þetta ekki síður en aðrar skuldir,« og varð honum ósjálfrátt að leggja sérstaka áherzlu á orðin þarf og síður. »Já, það held ég, það kemur ætíð einhverntíma að skulda- dögunum, og ekki get ég altaf átt þetta hjá þér, ár frá ári; það er nú hálft annað ár, síðan þú fékst heyið; ég man nú raunar ekki gjörla, hvað það var mikið, ég er svo gleyminn, en það mun hafa verið eitthvað um 50 hesta og það ætluðum við víst á 150 3*
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.