Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1901, Page 36

Eimreiðin - 01.01.1901, Page 36
36 krónur og svo voru víst 5° krónur frá því áöur, fyrir eitthvað annað, jú, það mun vera rétt, það mun hafa verið 200 krónur, og þær áttu að vera á rentu minnir mig, eða var ekki talað um það?« sagði Sigurður og leit fast á Hafliða. »Já, það mun hafa verið minst lítilfjörlega á það,« sagði Haf- liði, án þess að líta upp, en hélt með annari hendinni um taum- ana, sem lágu slakir, í hinni hendinni hafði hann svipuna, sem hann neri fram og aftur um faxið á klárnum sínum. »En,« hélt hann áfram, »heyið var nú gamalt flóahey, eins og þú líklega manst og æði úrgangssamt, og er því nokkuð dýrt á 3 krónur hesturinn og svo voru þorskhausarnir, sem ég fékk hjá þér harða vorið, ekki sem beztir, og reyndar ekki fiskurinn heldur, það var mikið af honum ýsa, svo þú værir ef til vill fáanlegur til að sleppa rentunni, ef ég gæti einhvernveginn klofið að borga höfuðstólinn. »Nei, Hafliði, rentunni get ég ekki slept; hvað er það líka, að borga svo sem 10 af hundraði, þegar menn þurfa að fá hlutinn og geta ekki borgað út í hönd, enda man ég ekki til,« sagði Sig- urður og brýndi röddina, um leið og hann bandaði hendinni aftur fyrir sig, eins og af gömlum vana, »að þú talaðir neitt um, að það væri dýrt, þegar þú fékst þetta hjá mér, en það er oftast svo hjá ykkur, að það er gleymt, þegar gleypt er, og ekki var mér þægð í að selja þér þetta, nei þvert á móti, ég tók mér mikið í mein; svo launar þú mér með að gera þras út úr borg- uninni, en borgunina þarf ég að fá, og það sem fyrst« og var hann nú orðinn æði valdsmannslegur í rómnum. Veslings Hafliði reið við hlið hans, niðurlútur og ráðleysislegur, líkastur á svipinn manni, sem staddur er í háska og sér enga undankomu von, ekkert fyrir annað en dauðann. Hann rendi huganum fram á veginn og sá, að ef hann yrði að borga þetta bráðlega, mundi búið ganga svo til þurðar, að hann gæti ekki haldið jörðinni lengur, og hvað lá þá fyrir honum með börnin hans 12 að tölu annað en sveitin, og það fór hrollur um hann, eins og honum rynni kalt vatn milli skinns og hörunds. Öllum þeim háðsyrðum, höggum og slögum, sem hann hafði séð rigna niður yfir ýmsa sveitarómaga, frá hinum og þessum, húsbændum og hjúum, brá nú sem leiftri fyrir í huga hans, og hann sá börnin sín, sem nú voru frjálsleg og þrifalega til fara, skyndilega breyt- ast; hann sá þau í óhreinum og rifnum tötrum, gjóta glóðaraug- unum út undan sér, eins og þau þyrðu ekki að líta upp, en ættu

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.