Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1901, Qupperneq 67

Eimreiðin - 01.01.1901, Qupperneq 67
67 bókarinnar né kostnaðarmaður hefðu skaðast á því, að láta frásögnina vera hér fyllri og yfirgripsmeiri. Kaflanum um trú .og goðadýrkun (bls. 15) hefði höf. verið betra að sleppa, úr því honum gat ekki tekist betur við hann en þetta. Hverju barni er kunnugt um það, sem þar stendur. Höf. gjörir ekki minstu grein fyrir allri þeirri fegurð, sem felst í hinni fornnorrænu goða- trú, og honum verður ekki að vegi að benda á eina einustu af þeim háleitu og djúpu hugmyndum, sem koma fram í goðasögnunum. Ekki getur hann kent það rúmleysinu einu saman, því hann tilfærir lélegt ágrip af ferð Þórs í Jötunheima, sem vel hefði mátt missa sig. Það er ágætt dæmi upp á smekkvísi höf., að hann einmitt skyldi detta niður á þessa sögu, þar sem úr svo mörgum fögrum sögum er að velja. íkaflanum: »Ulfljótur löggjafi og lög hans; alþingi sett á stofn«- (bls. 22) bryddir þegar í upphafi á ónákvæmni. Af frásögn höf. er það helzt að ráða, að Úlfljótur hafi verið hvatamaður að því, að koma á allsherjarlögum fyrir landið, og að hann hafi tekið upp hjá sjálfum sér að ráðast í það. Fyrir þessu er engin sönnun, og eftir frá- sögninni í heimildarritunum er eðlilegast að hugsa sér það þannig, að menn hafi verið búnir að ráða ráðum sínum um þetta og síðan komið sér saman um að fela Ulfljóti framkvæmdirnar í þessu efni í sama kafla (bls. 27) stendur: »Lögsögumaðurinu var merkastur embættis- maður í hinu íslenzka þjóðveldi«. Hann var það, því hann var eini embættismaðurinn. Hann einn hafði embættisvald sitt frá sjálfri þjóð- inni, þar sem hann var kosinn af fulltrúum hennar á þingi (lögréttunni). Goðarnir höfðu ekki sitt vald frá þjóðinni, hvorki frá þjóðfélaginu í heild sinni né frá nokkrum hluta þess, og voru því ekki embættismenn þjóðarinnar. Þeir voru héraðshöfðingjar, vald þeirra var upprunalega sjálftekið og síðan arfgengt Vald lögsögumannsins aftur á móti var honum í hendur fengið af þjóðinni, og þess vegna gat þjóðin tak- markað það svo og einskorðað eins og hún gjörði. Utan þings hafði hann eins og höf. drepur á, ekkert frekar að segja, en hann sem ein- staklingur gat haft, hvort sem hann var lögsögumaður eða ekki. Menn skirðust meira að segja við að trúa nokkrum af hinum ríkari höfðingj- um fyrir lögsögunni, af ótta fyrir því, að þeir mundu vaxa mönnum yfir höfuð. Þeir hyltust til að velja til þess starfa menn, sem ekki áttu mikið undir sér og ekki gátu haft nein skaðvænleg áhrif á þjóð- málefnin. í kaflanum um goðana (bls. 31) farast höf. þannig orð, að eigi verður annað séð, en að aðalstarf þeirra hafi verið innifalið i guðsdýrk- uninni. En svo var eigi á þeim tírria, sem hér er um að ræða. Höf. tekur það hvergi fram, hvorki í þessum kafla né síðar, er hann minn- ist á þingskipunina (bls. 39), að þing og dómar stóðu í sambandi við öll höfuðhof, og að aðalstarf goðans var í því fólgið, að veita þeim for- stöðu og að annast héraðsstjórnina yfir höfuð. Við blótveizlurnar í hof- unum voru nátengdir allir lögfundir, einnig dómþingin, og var það haldið undir umsjón og stjórn goðans. í hofunum var varðveittur hinn helgi stallahringur, sem var roðinn blóði fórnardýranna og allir lögeiðar unnir að, og dómsvaldið í sakamálum stóð í hinu nánasta sambandi við hofið 5*
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.