Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1901, Blaðsíða 40

Eimreiðin - 01.09.1901, Blaðsíða 40
200 R i t s j á. LÖGFRÆÐINGUR. IV. árg. Akureyri 1900. Fremst í þessum árgangi er ritgerð um »hundraðatal á jörðum« eftir ritstjórann sjálfan, amtmann Pál Briem, og er hún bæði fróðleg og mjög eftirtektarverð. Aðalefni hennar er að sýna, að kúgildi hafa að fornu alls eigi fylgt jörðum á íslandi sem lögfylgjur þeirra, en um 1100 hafi sumir verið farnir að taka upp á því, að láta lausafé og meðal annars málnytu- kúgildi fylgja þeim. Þegar svo var ákveðið í lögum, að menn mættu taka hærri leigu af málnytukúgildum en öðru lausafé, þá hafi það orðið til þess, að landsdrotnar hafi alment farið að láta leiguliða sina taka við kúgildum ásamt jörðunum. Og þegar tímar liðu fram, hafi þetta orðið svo vanalegt, að ýmsir hafi farið að telja kúgildin lögfylgjur jarða, unz þessi venja hafi orðið löghelguð á 19. öldinni. Því næst er og sýnt fram á, að jörðinni hafi að fornu fylgt öll nauðsynleg hús, og að landsdrotnar hafi átt að leggja við til húsa, er þau þurfti að byggja upp. Breyting á þessu hafi fyrst orðið eftir siðabótina, er kon- ungur hafði tekið undir sig jarðeignir klaustranna. Konungur hafi þá eigi viljað leggja við til húsa á klausturjörðum og því ákveðið, að leiguliðar skyldu sjálfir byggja húsin að öllu leyti á eigin kostnað. Á næstu 100 árum hafi þetta svo orðið venja á öðrum leigujörðum. En eftir það hafi jarðarhúsum farið að hnigna, en leiguliðar hafi, eins og eðlilegt var, talið alt það eign sína, sem þeir höfðu lagt til og þeir gátu úr þeim rifið. Jarðarhúsin hafi því týnt tölunni, og ýms nauð- synleg hús á jörðum hafi orðið eign leiguliða. f’á sýnir haf. og fram á, að hið forna hundraðatal á jörðum sé blátt áfram komið upp á þann hátt, að menn hafi metið jarðir til verðs. Á það hefir líka ritstjóri Eimreiðarinnar bent fyrstur manna í ritgerð, sem höf. vitnar í. En með því sú ritgerð var aðallega um annað efni, vóru þar ekki fram færðar nægilega öflugar sannanir fyrir þessu. En amtmaðurinn hefir nú rannsakað þetta langt um betur og fært full rök fyrir því, að þessi skoðun sé rétt, og er oss það mikið gleðiefni. Skoðun amtmannsins á hundraðatali jarða er aðeins í einu atriði frábrugðin þeirri skoðun, er vér höfum áður látið í ljósi, og þar hefir hann að öllum líkindum réttara fyrir sér, að minsta kosti að því er Sturlungaöldina snertir. En að öðru leyti er munurinn enginn, ef rétt er að gáð. Höf. sýnir fram á, að upprunalega hafi það verið nokkuð á reiki, við hvað dýrleiki jarðanna var miðaður. Stundum hafi hann verið miðaður við verðaura, en stundum við álnir og jafnvel við kúgildi. En þegar tíundarlögin vóru sett (1096), þá hafi menn átt að meta jarðir til 6 álna aura. Hundraðatal á jörðum í 6 álna aur- um hafi og fundist á mörgum jörðum; en auk þess hafi það h'ka átt sér stað, að menn hafi miðað við þriggja álna aura, unz það hafi að lokum rutt sér til rúms, að hundraðatal jarðanna hafi eingöngu verið miðað við álnir. Þetta hafi átt sér stað á síðari hluía 12. aldar og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.