Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1901, Blaðsíða 21

Eimreiðin - 01.09.1901, Blaðsíða 21
væri að endurbæta það. Búnaðarfélagið í bygð Jóns hafði ræki- lega rætt málið á hverjum fundi síðastliðin þrjú ár, en lengra hafði það vitanlega eklci komist, enda vóru margir, sem sögðu slíkt óþarft mál. Jón var einn af þeim. Hann kvaðst ekki geta séð, að Skjalda sín væri nokkri vitund minni vexti en hún Grána tnóðir hennar, og báðar væru þær góðar mjólkurkýr og mestu þrifa- skepnur. En hvað tuddann snerti, þá væri hann mesti efnisbraddi, og líklegur til að verða sveitinni til sóma, ef honum entist líf og heilsa til. En nú sannfærðist hann um það, að ef nautgripum sínum hefði á síðasta áratug hnignað jafnmikið^ og veggjalúsunum, þá væri sannarlega engin vanþörf á að endurbæta kynið. Og hann einsetti sér að verða forsprakki allra kynbótahreyfinga þar nyrðra, og halda langa og skáldlega ræðu á næsta búnaðarfélagsfundi málinu til stuðnings, og hafa veggjalýsnar í Winnipeg fyrir texta, og sjá svö, hvort ekki mætti hrinda málinu áfram. Pað leit annars ekki út fyrir, að honum yrði svefnsamt um nóttina; en þegar komið var fram yfir miðnætti, festi hann loks- ins svefn og vissi síðan hvorki í þenna heim né annan, fyr en hann vaknaði eftir kl. 8 næsta morgun. Hann heyrði, að niðri í húsinu var glamrað í diskum og hnífum, og þóttist vita, að morg- unmatur væri á ferðinni, og skollinn máttivita, nema mathákarnir þar væru búnir að éta alt það bezta. Hann fór á fætur, það var ekki seinna vænna, snaraði sér í fötin og ofan. Niðri var fá- ment, því daglaunamenn vóru flestir farnir til vinnu sinnar, og matborðið bar þess greinilegan vott, að þeir höfðu farið hermann- lega að og hroðið alt, sem þeir náðu til. En eldabuskan bar aftur mat á borðið, og Jón settist til borðs ásamt fjórum öðrum. Honum smakkaðist grauturinn vel og tæmdi diskinn á örstuttum tíma. Eldabuskan var alt af á þönum eins og fiðrildi kringum borðið, að rétta þeim það, sem þá vanhagaði um, bera frá þeim diska og færa þeim aðra. Jón langaði í meiri grautarspón og ásetti sér að fara bónarveg að henni. »Góa mín,« sagði hann og þreif í kjólinn hennar, þegar hún þaut framhjá, »ætli þú vildir ekki gera svo vel og gefa mér dá- lítið meiri grautarspón á diskinn?« »Góa« tók diskinn og fór, en kom aftur að vörmu spori með þá harmafregn, að grautur væri ekki til. Pað þótti Jóni heldur efnilegt. Alt var það á eina bókina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.