Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1901, Blaðsíða 41

Eimreiðin - 01.09.1901, Blaðsíða 41
201 á 13. öldinni, og svo hafi þetta hundraðatal jarða í álnum haldist fram á þennan dag. En nú hafi samkvæmt tiundarlögunum eigi þurft að tíunda kirkjueignir, og þegar kirkja hafi átt nokkurn hluta í jörðu, þá hafi tíundarhundriib jarðarinnar orðið annað en dýrleikahundrub hennar, og eins hafi menn stundum farið að virða jarðir óhæfilega hátt til arfs og giftumála. Þetta hafi meðal annars leitt til þess, að menn hafi farið að gleyma, að hundraðatal jarðanna var upprunalega miðað við verð þeirra. Menn hafi svo ekkert skilið í, á hverju hundraðatal jarða bygðist. Flestar jarðir hafi verið orðnar leigujarðir, en gengið lítt kaupum og sölum, og menn hafi því eigi getað gert sér í hugar- lund, að það væri miðað við verð jarðanna. Þá hafi menn búið sér til þá falskenningu, að hundraðatalið væri miðað við það, hversu mörg- urn kúgildum (hundruðum) jörðin gæti fram fleytt, og sú skoðun sé enn ríkjandi meðal manna og hafi gert íslandi afarmikið tjón. Fyrst og fremst hafi afarmiklu fé verið varið til þess, að fá jarðir metnar til hundraða, án þess að nokkur árangur yrði af því, og þegar jarða- mat loks var gert um miðbik 19. aldar, þá hafi orðið ýmsar misfellur á því, sem að sumu leyti hafi stafað af hinum röngu ímyndunum manna um hið forna mat á jörðum til hundraða. Þrátt fyrir þetta hafi þó engin almenn breyting fengist á jarðamatinu, og það þó að margar jarðir hafi gengið úr sér, en aðrar hækkað mjög i verði síðari hlut 19. aldarinnar. Þetta hafi auðsjáanlega stafað af því, að menn hafi óttast alla þá fyrirhöfn, sem jarðamat mundi hafa ( för með sér, ef fara ætti eftir því, hve miklu jörðin framfleytti, auk þess sem menn hafi auðsjáanlega óttast, að slíkt handahófsmat mundi að meira eða minna leyti verða óréttlátt. En ef hundraðatal jarða aftur á móti sé miðað við verð þeirra, þá sé lítil ástæða til að ætla, - að matið verði ranglátt. Fyrst og fremst sé verðmælirinn þá hinn sami um land alt, en ekki eins og kúgildin, sem eru miklu verðmeiri i einu héraði en öðru, og jafnvel í sama héraði, og í annan stað sé margt, sem hægt sé að miða við: söluverð, virðingar til veðs, skifta, arfs, leigumáli o. s. frv. En ef nú svo skyldi til takast, að menn vildu fara að meta jarðir á íslandi til dýrleika, þá sé í raun réttri tóm sérvizka að vera að halda í hið forna hundraðatal. Þegar verðmælirinn breyttist þannig, að hann varð venjulega álnir, þar sem áður hafði venjulega verið eyrir, þá hafi fornmenn einnig breytt hundraðatalinu þannig, að það var talið í álnum, en ekki í aurum. Nú á dögum sé verðmælirinn ekki lengur alin, heldur króna og eyrir. Þess vegna sé nú eðlileg- ast að meta dýrleika á jörðum í krónum og aurum. Þetta er aðeins kjarninn eða aðalefnið í þessari ágætu ritgerð, en þá er þó ekki nema hálfsögð sagan. Þá vantar allar röksemdirnar og ýmsan annan fróðleik, sem hún flytur; en i því efni verðum vér að vísa til ritgerðarinnar sjálfrar. Þá er næst ritgerð um »dagsverk til prests« eftir sama höfund, og er þar rakin saga dagsverksins frá því á 14. öld, er þess er fyrst getið, og alt fram á vora daga. Hefir sú ritgerð eigi alllitla réttar- sögulega þýðingu og skýrir ýmislegt, sem flestum mun áður hafa verið óljóst. Þriðja ritgerðin er um smentun barna og unglinga« eftir sama
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.