Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1913, Blaðsíða 12

Eimreiðin - 01.09.1913, Blaðsíða 12
164 Ég hefi nú drepið á landgæðin okkar, sem svo eru kölluð. En ekki er sjávargagnið minna. Aflaskýrslurnar sýna þorskmergð- ina, sem gengur að landinu, og er þó ótalin veiði erlendra á- gangsmanna. Og það er af síldinni að segja, að hún gengur svo mikil að Norðurlandi hvert sumar, að nálega krapar allan sjó af síldarmergðinni vestan frá Horni og austur að Langanesi. Gæti landið notið gæðatina, sem það ber í skauti sínu og alls þess sjávargagns, sem til er og að skreið mætti verða, mundi miljón manna geta lifað hér við góð kjör. Og ekki ætti Heimskringlu- maðurinn að bregða okkur um þrekleysi og viljaskort, þó að vér búum ekki á landi voru og fiskimiðum með svo útfærðum kvíum, sem verið gæti. — Meðan Kanada, sem er mannveiðaþjóð og lifir á aðflutningi, er ekki búin að nema lönd sín nema til hálfs og á eftir að færa út sínar kvíar norður um lönd og höf Húð- sonsflóa, situr það ekki á veiðimanninum, að kasta til okkar hanzka sínum og láta steina vera í vetlingstotunni og þumlunum. Éess var getið í blöðunum síðastl. sumar, að svo margir menn hafi þá flutt sig búferlum vestur um haf, að nema mundi þeirri tölu útflytjenda samanlagðri, sem farið hefir 4—5 árin þar á undan. Hamingjan fylgi löndum mínum, hvert sem þeir fara, og láti vonir þeirra lifa. Ég segi ekki rætast, því að vonirnar rætast aldrei að öllu leyti, og er ekki til neins að óska þess. En manninum er altaf lífvænt, meðan vonirnar lifa í brjósti hans. Og þegar um vesturfara héðan úr landi er að ræða, þarf ekki að bera kvíð- boga fyrir þeim. Peir eiga vísan faðm frænda og vina, útbreiddan faðm og framréttar hjálparhendur. Það hefir reynslan sýnt, síðan þeir komust yfir frumbyggjatorfærurnar. Og víst er það líklegt, að sæmdin sé framundan sumum þeirra, þvílíkan frama sem landar vorir, þó nokkuð margir, hafa hrept vestur frá, bæði á framkvæmdasviðinu og á mentaveginum. — En því meiri líkur, sem til þess eru, að þeir verði landinu að gagni og sóma, — sem þeir flytja til — því meiri skaði er ætt- jörðinni að fráhvarfi þeirra. Um það tjáir nú ekki að fást. — En framsækni og manndáð landa vorra, sem gerir þá nafn- kunna í Vesturheimi, vekur upp í huga mínum eina spurningu, og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.