Eimreiðin - 01.09.1913, Side 51
203
tiorður yfir Öxnadalsheiði mætum við þar kynlegri sjón; því þar
er hinn frægi amtmaður eins og seztur í sæti hins illræmda Bólu-
skálds og farinn að setja aftur sál og merg í vísnaglens héraðs-
ins. Par var Bjarni sjálfur kominn í hópinn alþýðuskáldanna,
og stóð þar jafnt að vígi þeim Jóni gamla á Bægisá og Bólu-
Hjálmari, enda gaf hvorugum eftir, ef honum tókst upp. Er nóg
að nefna vísuna:
Mörður týndi tönnum,
til það kom af því,
hann beit í bak á mönnum,
svo beini festi í;
eða vísuna:
Svíns er jafnan raustin rám,
rymur í drykkjuhundi;
þó er gemlan eftir ein,
það er in hola höggormstönn,
helzt er vinnur mein.
heilagan ég held hann Glám
hjá honum Birni í Lundi.
En margar aðrar skrítlur Bjarna eru léttmeti, því braglistarmaður
mikill var hann ekki. En ef hærra var flogið eða dýpra grafið,
skorti hina alt á við hann. Að öðru leyti naut Bjarna stutta
stund í Eyjafirði, og varð því starfsemi hans og hærri áhrif enda-
sleppari en ella mundi.
Um þær mundir voru Þingeyingar byrjaðir að kveðast á,
mengað og ófínt flest, en vel kveðið og gáfulegt, eins og títt er
í þeirri sýslu. Svæsnastur þar nyrðra þótti Gísli bóndi í Skörð-
mn, faðir Arngríms málara. Eftir Gísla er þessi staka við keppi-
naut hans í kveðskapnum, Jakob á Breiðumýri, er ríða skyldi
suður á Bjóðfundinn 1851:
Hrokinn tryllir galinn glóp, ef þú ei fyllir þrælahóp,
góðra hylli vikinn; þá er jeg illa svikinn.
Um Húsavíkur-Jóhnsen kvað hann:
Burtu hrókur flýði flár, En þó að klókur þerði brár,
forláts tók á bænum; það voru krókódíla-tár.
Og við Þorlák bónda (heiðarlegasta mann) kvað Gísli:
Bað mig grunar, Porlákur, að hjá þér uni ættgengur
þó þrotni spuninn ljóða, æru og muna þjófnaður.
Viðskiftum þeirra Björns í Lundi, Jakobs d Breiðumýri (»Kobba
á Hamri«), svo og Eyfirðinganna, Ara Scemundssonar og annarra
við Bjarna amtmann skulum við sleppa hér. En ýmsa fleiri vel
hagorða menn í Eyjafirði og Pingeyjarsýslu mætti enn nefna, ef
rúmið og tíminn leyfði, svo sem Tómas á Skdldstöðum, er kvað
um reyniviðarsöguna á undan Gísla Brynjúlfssyni; Árni d Stekkj-
14’