Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1914, Page 3

Eimreiðin - 01.05.1914, Page 3
79 leiddi hann af skógarjarðberjategund einni nyrzt úr Norður-Ame- ríku og viðkvæmari ræktartegundum nýja tegund, sem var eins harðger og villijurtin, en bar ber sem bezta ræktartegund ^). Ýms önnur aldini endurbætti Hansen, og varð það til þess, að gjör- breyta á fáum árum aldinarækt í norðurhluta Bandaríkjanna. Um þessar sömu mundir kvörtuðu bændur í hinum kaldari landshlutum ríkjanna undan því, að kaldir, en snælausir, vetrar, sem þá gengu, eyðilegðu fyrir þeim aðal-fóðurjurt þeirra lúsernuna, svo oft varð horfellir, og höfðu íbúar landshluta þessarra •— sem að samanlögðu voru margfalt stærri en alt Island, — í ráði að flytja alveg burt úr þeim. Landbúnaðarráðaneytið leitaði þá ráða hjá Hansen, og sagði hann, að úr þessu mundi mega bæta, ef hægt væri að finna harðgerða villitegund af lúsernum, og framleiða kynblending af þeirri tegund og ræktartegund. Hansen vissi, að lúsernan hafði fluzt til Evrópu austan úr Evfrat-dal, nálega 500 árum f. Kr. (en til Ameriku var hún komin frá Evrópu), og álykt- aði af ýmsum atvikum, sem hér er slept, að forfaðir hinnar rækt- uðu lúsernu mundi eiga heima, sem villijurt, einhverstaðar í Norð- ur-Asíu (eða jafnvel Norður-Evrópu) og mundi harðger. Banda- ríkjastjórnin gerði hann nú út, til þess að finna þessa væntanlegu harðgerðu lúsernutegund, og var hann samtals í tólf ár í þeirri leit. Lá leið hans og förunauta oftast um óbygðir, og lentu þeir í margvíslegum hrakningum, en loks fundu þeir lúsernur, og eigi minna en þrjár tegundir; það var í norðvesturhluta Kínaveldis, nálægt Kuldja. Eftir heimkomu sína tókst Hansen að framleiða nýjar lúsernu- tegundir, sem eru eins harðgerðar og villitegundirnar, en þó jafn- framt góðar fóðurjurtir, og er talið, að þessar nýju lúsernutegundir hafi gert jarðeignir í Bandaríkjunum samtals 2000 miljónum króna verðmeiri, en þær voru áður. Auk lúsernanna hafði Hansen ýmsar aðrar plöntur með sér úr ferðalaginu. Er einkum getið smárategundar einnar, sem ætlað er, að mikið gagn muni verða að síðar. x) Jarðberjategund sú, sem á íslandi vex (fragaria vesca), vex einnig í Norður-Ameríku, og má vel vera, að það haíi verið af henni að Hansen framleiddi hina nýju tegund. (Danir kalla f. vesca skógar-jarðber).

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.