Eimreiðin - 01.05.1914, Blaðsíða 33
109
■öðru risið upp á Englandi, svo að heita má, að varla haíi liðið
svo nokkurt ár, að ekki hafi þar eitthvert slíkt hæli verið reist.
Einhver stórkostlegasta stofnunin af þessu tægi er »Poor Laws
Infirmeries«; það eru 26 sjúkrahús í sjálfri Lundúnaborg og í grend
við hana og rúma alls 14,000 sjúklinga. Pangað leita flestir fá-
tækir sjúklingar úr Lundúnaborg sjálfri, einkum þeir, sem langt
eru leiddir af veikinni.
Hið einkennilegasta við allar þessar stórkostlegu sjúkrahús-
byggingar á Énglandi er það, að þær eru allar reistar af sam-
skotafé og gjafafé frá einstökum mönnum, án þess að ríkið né
ríkissjóður eigi þar nokkurn þátt í, og sama er að segja um við.
hald þeirra og árlegan reksturskostnað. Petta er raunar ekkert
einkenni á berklaveikishælum, heldur er þessu þannig varið með
öll sjúkrahús á Englandi. Ríkisfólk og hefðarfólk stendur fyrir
samskotunum og stjórnar sjálft fyrirtækinu. Önnur aðferð til fjár-
söfnunar handa sjúkrahúsum á Englandi er sú, að einn sunnudag
á ari er í öllum kirkjum landsins, hverju trúarfélagi sem þær til-
heyra, borinn betlibolli um á meðal þeirra, sem í kirkju eru, og
getur þá hver gefið eftir vild; fyrir þá, sem ekki fara í kirkju, er
valinn einhver einn laugardagur á ári, og er þá gengið meðal
þeirra með samskotabollann bæði í húsum inni og á strætum úti.
A þennan hátt safnast mikið fé, sem svo er skift milli sjúkrahús-
anna.
Ennfremur er þar fyrir nokkru stofnað félag um land alt, til
að vinna að því, að stemma stigu fyrir berklaveiki og leitast það
við að ná takmarki sínu með því, að efla vísindalega þekkingu á
veikinni, stuðla að fræðslu almennings um hana með alþýðlegum
ritum og fyrirlestrum og stofnun heilsuhæla fyrir alþýðu. Slík
heilsuhælis- eða berklaveikisfélög eru nú víða um lönd og vinna
stórmikið gagn.
Öll þessi starfsemi Englendinga hefir borið hinn bezta árang-
ur, svo að nú deyja meira en helmingi færri menn að tiltölu við
fólksfjölda úr berklaveiki en fyrir 50—60 árum.
Svipuð þessu er baráttan í öðrum ríkjum, og er ekki tími til
að fara nánar út í hana hér, á hverjum stað fyrir sig, en engir
hófu hana líkt því eins snemma og Englendingar, og því er
árangurinn orðinn þar augljósastur.
Löggjafarstarfsemi landanna til heftingar berklaveiki hefir
aðallega snúist að þessum atriðum:
8