Eimreiðin - 01.05.1914, Blaðsíða 72
148
miður gefið tveim árum seinna en höf. dreymdi drauminn, og rýrir
það gildi þess. Draumspekingar eru enn eigi ásáttir um, hvort spá-
draumar séu til eða ei, — hvort eigi megi venjulegast rekja orsakir til
drauma þeirra, er mönnum virðist vera spádraumar, til einhverrar óljós-
rar vitundar eða hálfdaufrar óskar í brjósti þess, er dreymir. Að því
er séð verður, virðist þessi draumur vera spádraumur, og hefði hann
verið skrifaður upp og vottfestur þegar um morguninn, mundi draum-
spekingum hafa þótt ærinn fengur í honum.
Þá getur höf. og um ýms dularfull fyrirbrigði, hugsanaflutning o.fl,
Að vísu kemur þar ekkert í ljós, er menn ekki áður hafa þekt dæmi
til og reynt að athuga. En frásögn höf. öll ber það með sér, að
hann hefir verið óvenju næmur fyrir öllum þesskonar áhrifum, og væri
fróðlegt að fá meira af slíku frá hans hendi. Mikill kostur væri það
á slíkum frásögnum eigi síður en á draumum, ef þær væru skrifaðar
upp og vottfestar undireins, — áður en menn fá fregnir um, við hvað
þær hafa átt. Sýnir þær. er höf. skýrir frá, að fyrir hann báru á
Seyðisfirði 1881, eru markverðar, og leitt að hann skuli eigi hafa skrif-
að þær upp samstundis og vottfest.
Bókin er skemtileg aflestrar og ber vott um einkennilegt sálarlíf,
sem vel er þess vert, að því sé gaumur gefinn. B. P Bl.
HIÐ ÍSLENZKA FRÆÐAFÉLAG. Arsbækur félagsins fyrir 1 q 13
eru sannarlega þess verðar, að þeim sé gaumur gefinn:
1. Píslarsaga síra Jóns Magnússonar, 2. h. (sýnir hve mögnuð hjátrú
getur gert fólkið vitlaust).
z. Bréf Pdls Melstebs til fóns Sigurbssonar (skemtileg og að ýmsu
leyti fróðleg bók, sem er bréfritaranum til sóma; en hefði mátt
vera betur útgefin, því nauðsynlegar skýringar á ýmsu vantar).
3. Jarbabók Árna Magnussonar og Páls Vidalíns I, 1 (ómissandi
fyrir alla jarðeigendur og leiguliða jafnvel líka).
4. Ferbabók Porv. Ihoroddsens I, 1. (Skýrslur um rannsóknir á ís-
landi 1882—r8q8. Verður stórmerk bók, sem tækifæri verður til
að minnast frekar á síðar).
En mein er það, hve ósýnt sljórn Fræðafélagsins er um að gera
fólki hægt fyrir að ná í þessar góðu bækur, þar sem hún hefir svo
fáa og strjála útsölumenn, að mörgum verður næsta örðugt, að vér
ekki segjum ókleift, að ná til þeirra. V. G.
ÁRBÓK HÁSKÓLA ÍSLANDS fyrir háskólaárið 1912—1913-
Rvík 1913.
Hún inniheldur, eins og lög gera ráð fyrir, margskonar skýrslur,
um stjórn háskólans, kennarara, stúdenta, kensluna, prófin, fjármál o. fl.
— Kennarar voru 20 (9 prófessorar, 4 dósentar og 7 aukakennarar)
auk tveggja starfsmanna (ritari og dyravörður). Stúdentarnir voru 45 :
7 í guðfræðisdeild, 15 í lagadeild, 21 í læknadeild og 2 í heimspekis-
deild, — einum færra en kennararnir og báðir norskir, en enginn
íslenzkur.